Gorbatsjov breytti heiminum - til hins verra

Gorbatsjov, síđasti leiđtogi Sovétríkjanna, var góđmenni sem breytti heiminum til hins verra.

Gorbatsjov lagđi niđur Sovétríkin og felldi járntjaldiđ sem skipti heiminum, Evrópu sérstaklega, í austur og vestur. 

Eftir fall Sovétríkjanna var tekin upp í kommúníska hluta Evrópu regla sem annar góđviljađur mađur kynnti heimsbyggđinni fyrir rúmri öld, Woodrow Wilson Bandaríkjaforseti. Ţjóđríkjareglan, ađ hver ţjóđ ćtti ađ eiga sitt ríki, er skynsöm og réttlát. En í framkvćmd eftir fyrri heimsstyrjöld bjó hún í haginn fyrir ţá seinni.

Eins međ upplausn Sovétríkjanna; hún var söguleg nauđsyn sem leiddi af sér óreiđu er ekki sér fyrir endann á.

Ţegar eitt skipulag fellur, tvenn ţýsk keisararíki eftir fyrra stríđ og eitt rússneskt, fylgir upplausnarástand í áratugi. Í dag gímir heimurinn viđ afleiđingarnar af falli Sovétríkjanna á sléttum Úkraínu. Vestriđ hyggst ţar heimta sigurlaunin eftir uppgjöf Gorbatsjov í kalda stríđinu fyrir 30 árum.

Í kalda stríđinu var heimurinn öruggari og fyrirsjáanlegri. En hvorki var hćgt ađ framlengja kalda stríđiđ né lengja líftíma Sovétríkjanna. Skipulagiđ eftir seinna stríđ var gengiđ sér til húđar. 

Til ađ friđsamleg sundurlimun Sovétríkjanna og Austur-Evrópu hefđi mátt ganga fram og verđa liđur í nýrri heimsskipan hefđi hin hliđin á kaldastríđsjöfnunni, Bandaríkin og Vestur-Evrópa, orđiđ ađ ţćttast líkt og sovéska hliđ jöfnunnar. En ţađ stóđ aldrei til. Sigurvegarinn vildi sín verđlaun. Mannlegur breyskleiki er samur viđ sig, tekur sigur í vegferđ til glötunar fram yfir skynsama málamiđlun.

Jafnvel bestu menn, góđviljađir og vandađir, eru leiksoppar kringumstćđna.

Framlag Gorbatsjov, sem mun halda nafni hans á lofti um ókomna tíđ, er ađ honum tókst ađ leysa í sundur heimsveldi á friđsaman hátt. Eftirleikurinn var ekki í hans höndum. 

Blessuđ sé minning Mikhail Gorbatsjov, ađalritarans sem gerđi flest rétt en fékk samt slćma útkomu.


mbl.is „Breytti gangi sögunnar“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiđarsson

Sovétríkin voru komin af fótum fram fyrir valdatíđ Gorbastjov og hefđu falliđ án hans. Hins vegar var Gorbi kallinn svo óheppinn ađ verđa valinn til ţess verkefnis ađ setja lokapunktinn.

En auđvitađ rímar söguskýring ţín Páll, betur viđ sögur höfđingja ţíns.

Gunnar Heiđarsson, 1.9.2022 kl. 08:43

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

A ţeim tíma var heimspólitík langt frá mínum pćlingum,en ţeim mun áhugaverđari óbćldur skaphiti Gorbastjov,s berjandi skónum sínum í borđ(eđa púlt)til ađ undirstrika kröfur sínar á mikilvćgum fundi S.Ţ.  

Helga Kristjánsdóttir, 1.9.2022 kl. 10:32

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Er ég ađ rugla ,var ţađ Krússi?

Helga Kristjánsdóttir, 1.9.2022 kl. 10:51

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ţegar Gorbasjov var svo velt úr sessi spurđi íslenska Ţjóđarsálin: en hvađ međ Rćsu? 

Ragnhildur Kolka, 1.9.2022 kl. 15:57

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Gorbatsjov fékk ţađ erfiđa hlutverk ađ leysa um spillinguna í Sovét. Hann var ofurliđi borinn af rússnesku mafíunni. Ţeirri sömu og nú stjórna Rússlandi.

Jósef Smári Ásmundsson, 1.9.2022 kl. 21:23

6 Smámynd: Sigurđur Kristján Hjaltested

Held ad Jósef sé med thetta.

Sigurđur Kristján Hjaltested, 2.9.2022 kl. 05:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband