Stríð enda með friði

Úkraínustríðinu, líkt og öðrum stríðum, lýkur með friði. Í stríði breytast valdahlutföll. Öll stríð byrja á að andstæðar fylkingar trúa á sigur, annars væri ekki stríð. En helmingur stríðsaðilja metur stöðuna rangt og fer halloka. Friðarsamningar taka mið af nýjum staðreyndum.

Selenskí forseti Úkraínu er tilbúinn að gefa formlega eftir austasta hluta Úkraínu, Donbass, og Krímskaga sömuleiðis. Líklega er það ekki nóg. Rússar tóku þessi landssvæði þegar árið 2014. Krímskagi er háður vatnabúskap árinnar Dniepr. Rússar samþykkja tæplega að vera undir velvilja Úkraínumanna komnir að þessu leyti. Þeir þurfa landið norðan skagans. Þriðjungur til helmingur núverandi Úkraínu er undir. Allt landið ef Rússar ætla að gera Úkraínu hérað í móðurlandinu.

Stríðsmarkmið Rússa eru að gera Úkraínu að varanlega hlutlausu ríki hið minnsta. Það þýðir stjórnarskrárbreytingar og afvopnun. Í samkomulagi sem Úkraína skrifaði undir 2015, kennt við Minsk, var kveðið á um stjórnarskrárbreytingar er gerðu Úkraínu að sambandsríki með veikt miðstjórnarvald. Komi til friðarsamninga á næstu dögum verður krafa Rússa um að Minsk-samningurinn nái fram að ganga. Selenskí forseti er hetja Úkraínu í stríðinu. En óvíst er hvort hann hafi pólitískt afl til að knýja á samþykkt samninga er fela í sér stjórnarskrárbreytingar, afsal á úkraínsku landi og í kaupbæti afvopnun.

Stjórnin í Kænugarði var þegar á fimmta degi stríðsátaka tilbúin að hitta Rússa við samningaborðið. Rúmri viku seinna er vígstaða beggja verri en á ólíkan hátt. Stjórnin í Kænugarði hefur misst meira landssvæði, er umkringd, en Rússland tapað hermönnum og vígtólum. Rússar hafa yfirhöndina á vígvellinum en alþjóð stendur með Úkraínu. Vel að merkja mest í orði en síður á borði. Ekki fer það hátt en ríkjum Vestur-Evrópu finnst gott að fá til sín barnafólk af sömu menningu. Það vinnur gegn fólksfækkun heima fyrir án þess að valda árekstrum milli menningarhópa. Samt sem áður er gert ráð fyrir að þorri flóttamanna hverfi til síns heima þegar stríði lýkur. 

Rússum eru gerðar refsingar. Þær eru vestrinu dýru verði keyptar. Þjóðverjar sjá fram á bíllausa sunnudaga líkt og í olíukreppunni á áttunda áratug síðustu aldar. Verðbólga var á uppleið fyrir innrás og mun aukast hratt, ekki síst vegna hækkunar á hrávöru. Allir verða fátækari.

Þegar annar hvor stríðsaðilinn lætur bilbug á sér finna mun vestrænn þrýstingur á þann aðila aukast að gefa nógu mikið eftir til að fá frið. Snar þáttur í stríði er viljaþrek sem mælt er í seiglu og fórnfýsi.

Friðarsamningarnir í Minsk fyrir sjö árum reyndust hálfkák. Fyrirséðir samningar, á næstu dögum eða vikum, verða gerðir á milli aðila þar sem annar er beygður en hinn brotinn. Í þeim felst annað tveggja pólitískt gjaldþrot Rússa eða hernaðarleg uppgjöf Úkraínu. Hvorugt er hálfkák. Að þessu gefnu eru sæmilegar líkur á friði. Vonandi fyrr en seinna.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Vonandi eru þessar hugleiðingar þínar á réttu róli, en burtséð frá því, þá átt þú heiður skilinn Páll, fyrir að gefa öllum athugasemdum (flestum neikvæðum) færi á að birtast samstundis og þær eru sendar á síðu þína, í stað þess að vera svo huglaus að vilja lesa þær fyrst og ritskoða, svona til öryggis og ákveða síðan hvort þú þolir að þær sjáist hjá þér, líkt og nokkrir, að öðru leyti ágætir bloggarar skýla sér bakvið - án þess að nefna nein nöfn.

Jónatan Karlsson, 9.3.2022 kl. 10:14

2 Smámynd: Gísli Ingvarsson

Vestrænir bakhjarlar Úkraínustjórnar hafa haft næg tækifæri til að a) koma í veg fyrir innrásina b)bera klæði á vopnin. Miklu fremur hefur EU misst stjórnar á viðbrögðum sínum. Bakhjarl EU er Bandaríkjastjórn. Það má því segja að Úkraínustjórn og EU séu leppstjórnir eða handbendi. Burtséð frá því hvort menn telji að Úkraína eigi að vera sjálfstætt lýðræðisríki, sem hún er ekki í dag og varð ekki eftir Appelsínubyltinguna í febrúar 2014, og hvað sem mönnum "finnst um" Putin þá er þetta kaldastríðrugl alveg óverjandi ástand og einungis runnið undan rótum hernaðarsinna í Washington. Þó Pútin yrði steypt af stóli í kvöld mundi bara taka við annar leiðtogi jafn ákveðinn í að halda aðgerðunum til streitu. Heimsmyndin er að breytast. Ekki lengur Unipolar heldur Multipolar. Ný bandalög fara að koma upp til að frelsa sig frá ofríki Bandaríkjanna. Auðvitað hefði Evrópa átt að vera þar fremst í flokki.. okkar heimshluti er því miður á niðurleið og hratt hnignandi. Stríð í Evrópu yrði aldrei þriðja heimstyrjöldin. Til þess erum við ekki nógu valdamikil lengur. 

Gísli Ingvarsson, 9.3.2022 kl. 16:22

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Satt er það Jónatan að Páll leyfir því að flakka svo lengi sem ekki gengur fram af honum. Ég var að lesa á ÚS. að Rússar hafi fundið skjöl sem sanna að Ukraína hefði stefnt að því að ráðast á Krímskaga og fl.nú í byrjun mars. Með þeirri frétt eru skjölin ljósrituð og sýnd á vefsíðu þeirra. En vonandi komast "liðin"að samkomulagi um alla vega vopnahlé,meðan þau reyna að leysa úr þessu skaðlega ástandi. 

Helga Kristjánsdóttir, 10.3.2022 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband