Sólveig Anna og dýptin í sósíalismanum

Í uppgjör Sólveigar Önnu við vinnustað sinn, Eflingu, þar sem hún var formaður, segir hún um starfsfólk Eflingar:

þau við­ur­kenna ekki og skilja þann sam­fé­lags­lega raun­veru­leika sem við búum við. Þau við­ur­kenna ekki og skilja ekki það eign­ar­hald sem auð­stéttin hefur á þessu sam­fé­lagi og þar með við­ur­kenna þau og skilja ekki að til þess að ná árangri þá þarf að sýna þrek og þor og hug­rekki og kapp­sem­i.

Þetta er þunnur sósíalískur þrettándi hjá Sólveigu Önnu. Samkvæmt vísindalegum sósíalisma Marx er það byltingin ein sem skiptir máli, en ekki mannlegir eiginleikar eins og þrek, þor og kappsemi. Með byltingunni eru framleiðslutækin tekin úr höndum ,,auðstéttarinnar" og færð launþegum, sem Marx kallaði ýmist verkmenn eða öreiga. Sósíalistaævintýrið er að launþegar skapi í framhaldi paradís á jörð.

Tilraunir með sósíalisma í Sovétríkjunum og A-Evrópu á síðustu öld og Venesúela á þessari skiluðu almenningi fátækt og kúgun. 

Launþegar hafa það harla gott nú um stundir, betra en nokkru sinni í sögunni. Það er ekki þrátt fyrir kapítalisma og auðstétt heldur einmitt vegna þeirra.

Sósíalismi er ævintýri sem verður að steintrölli um leið og hann hittir fyrir veruleikann. Sólveig Anna segir starfsfólk Eflingar aldrei sett sig inn sósíalísku baráttuna af ,,þeirri dýpt sem þarf til að skilja hana." ,,Dýptin" í ævintýrum er blekkingin.

Ævintýri er eitt en veruleikinn annað. Hversdagsleikinn er blátt áfram en ævintýrin hugarflug um lönd og heima sem hvergi finnast. Börn vaxa úr grasi og læra að aðgreina reynd frá skáldskap. En sumir verða alltaf börn með höfuðið á kafi í ,,dýpt" blekkingarinnar.


mbl.is „Þau skildu aldrei þessa bar­áttu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband