Barn bjargar heiminum: Jesú, Jóhanna og Gréta

Vestræn menning er veik fyrir frelsara í barnslíkama. Sakleysi barnsins vottar að það hafi ekki aðra dagskrá en að bjarga syndugum heimi frá tortímingu.

Jesú reið á vaðið fyrir tvö þúsund árum, eingetinn sonur guðs. Með honum hefst eingyðistrú, einn járnharður sannleikur um lífið og tilveruna. Tvær meginstoðir kristni eru að guð skapaði heiminn og maðurinn er ófullkominn, syndugur. Í þessu felst að maðurinn hefur líf sitt og heimkynni, móður jörð, að láni frá almættinu.

Vasaútgáfur af Jesú eru þó nokkrar i gegnum tíðina. Þjóðardýrlingur Frakka, Jóhanna af Örk, tók sviðsljósið í lok miðalda til að sameina þjóðina og reka synduga Englendinga af franskri grundu. Bernsk trú sigrar hernaðarmátt.

Gréta Thunberg fylgir sniðmáti Jesú og Jóhönnu. Við lifum trúlausa tíma og Gréta getur ekki ákallað guð almáttkan líkt og forverar. Í takt við ráðandi vísindahyggju freistar Gréta þess að sameina mannkyn gegn ósýnilegri lofttegund, CO2 eða koltvísýringi.

Vandast nú málið eilítið. CO2 er forsenda lífs á jörðinni. Ef magn CO2 fellur niður fyrir 150 ppm svelta plöntur og skógar eyðast. Frá 1960 til samtímans hefur magnið aukist úr 280 í 400 ppm og jörðin grænkar.

Ráðgjafar Grétu segja aukinn koltvísýring valda hamfarahlýnun. Enn bólar ekkert á hlýnun sem tjón er af - það mun gerast í framtíðinni. Á dögum Jesú og Jóhönnu var talað um eilífðina, núna um framtíðina.

Engu skiptir þótt loftslagsvísindamenn, t.d. Richard Lindzen og William Happer, segja trú á manngert loftslag byggt á vanþekkingu og staðleysu. Gréta og fylgjendur hennar gera mestan hávaðann og í skjóli hans þrífast bábiljur. En það kemur að leikslokum sýningarinnar um manngert loftslag.

Jesú og Jóhanna dóu ofbeldisdauðdaga, á krossinum og bálinu. Góðu fréttirnar, bæði fyrir Grétu og samtíma okkar, er að allar líkur eru á að sænska stúlkan verði í fyllingu tímans miðaldra í heimi þar sem sannindi trompa bábiljur.

En það verður að setja fyrirvara. Við viljum hafa fyrir satt að sannindi sigri hávært blaður og vanþekkingu. Áhrifamáttur Grétu og fylgjenda hennar síðustu misseri gefur aftur til kynna að alþjóð er tilbúin að trúa hverju sem er. Bara að það sé sagt í barnslegri einlægni.

 


mbl.is Greta Thunberg segir COP26 eitt stórt klúður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snillingur Páll..laughing

Sigurður Kristján Hjaltested, 6.11.2021 kl. 15:12

2 Smámynd: Hörður Þormar

Auðvitað er CO2 forsenda lífsins á jörðinni, rétt eins og vatn, súrefni og fjöldi annara efna. Án gróðurhúsalofttegunda væri jörðin ólífvænleg vegna kulda.

Og enn er staglast á því að CO2 sé forsenda lífsins þótt því neiti ekki nokkur maður. En það hlýtur að vera óumdeilanlegt að, eftir aðstæðum, geti bæði verið of eða of van af þessari lofttegund, rétt eins og vatni.

Og enn er staglast á telpuhnokkanum, Grétu Thunberg. Þó var hún bara litli neistinn sem kveikti í því púðri sem loftslagsumræðan var búin að draga til sín. En satt er það, hún Gréta er alveg æðisleginnocent.

Hörður Þormar, 6.11.2021 kl. 18:43

3 Smámynd: Tryggvi L. Skjaldarson

Gréta segir: "Hlustið á vísindamennina,,. Kennarinn Páll vill það ekki.  Spurning hvort hann hafi velt fyrir sér ofuráhuga Kínverja á norðurslóðum?

Tryggvi L. Skjaldarson, 6.11.2021 kl. 22:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband