Stígamót, Stasi og KSÍ

KSÍ lét Stígamót fá lista yfir landsliðsmenn og bað um nöfnin yrðu könnuð í gagnabanka sem Stígamóta reka og inniheldur sögur um kynferðisbrot. Þetta kemur fram hjá talskonu Stígamóta í viðtali á Útvarpi Sögu.

Gagnabanki með sögum um afbrigðilega hegðun er þræði persónunjósnir eins og stundaðar voru í alræðisríkjum, t.d. Stasi í Austur-Þýskalandi, en hinum þræðinum kúgunartæki. Þegar gagnabankinn fær vottun frá hálfopinberum aðila, KSÍ, opnast tækifæri til að færa út kvíarnar.

Stígamót hafa nú þegar gagnabanka um listamenn og íþróttamenn. Næst er að safna sögum um stjórnmálamenn, kennara, lögreglumenn, millistjórnendur. Í svona málum eykur eftirspurn framboðið. Líkt og fjölmiðlar auglýsa eftir fréttaábendingum auglýsa Stígamót eftir sögum.

Og vitanlega koma sögurnar. Enginn veit hvort sögurnar eru sannar eða ósannar. Enda er það aukaatriði. Sögurnar þjóna þeim tilgangi að valdefla Stígamót og tryggja samtökunum fjárstreymi.

Aukabúgrein hjá Stígamótum væri að þiggja greiðslur til að fjarlægja sögur úr gagnabankanum. Fyrir hádegi er hægt að búa til sögur og eftir hádegi rukka fyrir að strika þær út. Ef menn ætla að halda atvinnu sinni, æru og mannorði er eins gott að borga.

Stasi-Stígamóta lýðveldið er að taka á sig mynd.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Strákarnir eiga, allir sem einn, ekki að gefa kost á sér í landsliðið. Þannig má losna við KSÍ og þurrka upp, í það minnst, eina tekjulind Stígamóta. 

Ragnhildur Kolka, 16.10.2021 kl. 10:48

2 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Ragnhildur ætli tekjurnar skipti ekki meira máli hjá strákunum en samstaðan. Fátt sem minnir orðið á stolt íþróttamanna að spila fyrir þjóð sína. Gengur allt úr á peninga. Þannig er það í flestum íþróttagreinum. 

Tala þarf um þessa geðveiki sem minnir orðið á aðferðir gegn svörtum á sínum tíma og allir fordæmda í dag. Nú mæra margir þessa aðferð af því hún beinist að karlmönnum, skömm að því. Meira að segja frambjóðandi í formannsembætti Kennarasamtakanna er ein af þeim. Upphafsmaðurinn meira að segja!

Helga Dögg Sverrisdóttir, 16.10.2021 kl. 11:19

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Helga Døgg nær allir þessir strákar hafa obban af tekjum sínum erlendis. Án landsliðs lifir KSÍ ekki lengi, áhugamenn um fótbolta munu sjá um það. 

Ragnhildur Kolka, 16.10.2021 kl. 12:40

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Eru rógberarnir búnir að gleyma þessui?

„Hann stakk mig tvisvar í vinstra lærið en mér tókst að ná hnífn­um af hon­um og halda hon­um niðri. Á þess­um tíma­punkti var ég ekki bú­inn að gera mér grein fyr­ir því að ég hafði verið stung­inn,“ seg­ir lögmaður­inn Guðni Bergs­son um hnífstungu­árás­ina á lög­manns­stof­unni Laga­stoð á mánu­dag­inn.

Eins og kunn­ugt er skarst Guðni í leik­inn þegar maður réðst að sam­starfs­fé­laga hans með veiðihnífi. Hann ligg­ur nú þungt hald­inn á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans og er haldið sof­andi í önd­un­ar­vél.

Guðni er í viðtali við frétta­vef­inn Bolt­on News, en hann spilaði knatt­spyrnu fyr­ir Bolt­on Wand­erers í átta ár, og seg­ir þar frá árás­inni. „Ég sá árás­ina eiga sér stað svo ég þaut inn á skrif­stof­una hans [sam­starfs­fé­lag­ans] og sá að þar var blóð og ég reyndi að kom­ast þangað eins hratt og ég gat til að koma hnífn­um frá hon­um.“

Guðni var í kjöl­farið stung­inn tvisvar í lærið en hon­um tókst að fjar­lægja hníf­inn úr hönd­um árás­ar­manns­ins. „Ég er í dá­litlu losti en hug­ur minn er hjá sam­starfs­fé­laga mín­um og ég vona að hann lifi þetta af.“

Rætt er við vin Guðna og fyrr­ver­andi liðsfé­laga, Jimmy Phillips, sem heyrði í Guðna skömmu eft­ir að hann var út­skrifaður af spít­ala. „Hann ger­ir lítið úr þessu en það seg­ir mjög mikið um mann­inn að hann hugsaði ekki um að hann væri að leggja sjálf­an sig í hættu held­ur um að koma sam­starfs­fé­laga sín­um til bjarg­ar.“

Guðni Bergsson.

Guðni Bergs­son. Ómar Óskars­son

Ómerkilegar kellingar leyfa sér að rógbera þesssa hetju þannig að hann fær ekki starfsfrið. 

Svei þaim

    Halldór Jónsson, 16.10.2021 kl. 19:41

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband