Saklausir menn, herskáir femínistar

 Hildur Lilliendahl Viggós­dótt­ir var dæmd fyrir eftirfarandi ummæli um saklausa menn:

„... þá gríðarlega alvarlegu aðför lögreglunnar að öryggi kvenna í Reykjavík að láta eiga sig að fara fram á gæsluvarðhald yfir körlum sem nauðga konum SAMAN svo yfirdrifið kerfisbundið að þeir hafa til þess sérútbúna íbúð.“
 
Oddný Arnarsdóttir var dæmd fyrir nokkuð ítarlegri ummæli, en upphafið er svona:
 
Það er ekki krafist gæsluvarðhalds yfir mönnum sem hefur í að minnsta kosti tvö
mismunandi skipti tekist að nauðga konum. Ekki nóg með að þeir nauðgi þeim heldur gera þeir það kerfisbundið.
 
Þær Hildur og Oddný töldu lögregluna ekki nógu viljuga til að beita gæsluvarðhaldi. Það má löglega hafa þá skoðun. En stöllurnar gáfu sér að tvímenningarnir sem voru til rannsóknar væru stórhættulegir raðnauðgarar. Þeir reyndust saklausir. Ólögmætt er að staðhæfa um glæpi sem ekki hafa verið framdir.
 
Lærdómur: hugsa fyrst, skrifa svo.

mbl.is Ummæli í Hlíðamáli dæmd dauð og ómerk í Landsrétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já Ljótt er,ða! 

Helga Kristjánsdóttir, 20.3.2021 kl. 03:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband