Orð og veruleiki eldgoss

,,Ræfilslegt" og ,,pínulítið" eru orð höfð um eldgosið í Geldingadal við Fagradalsfjall. Sérfræðingar og yfirvöld eru í samstöðu að gera sem minnst úr eldsumbrotunum. Kannski er það til að sefa ótta almennings, kannski til að hemja löngun margra að berja gosið augum og fara sér í voða í leiðinni.

Ef álíka gos og nú stendur yfir yrði nærri byggð væri það óðara kallað hamfaragos. Við metum atburði eftir afleiðingum þeirra. 500 metra eldspúandi gjá fjarri byggð og mannvirkjum er saklaus en lægi gjáin nærri mannvist yrði gripið til sterkra lýsingarorða. Þar með yrði skilningurinn annar og vekti tilfinningar kröftugri en léttúð og kæruleysi.

Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla, segir máltækið. Púðurhvellurinn i Geldingadal er orðinn hættulegur höfuðborg Íslands í erlendum fjölmiðlum. ,,Icaland volcano: eruption under way in Fagradalsfjall near Reykjavik," segir Guardian. ,,Vulkan nahe Islands Hauptstadt Reykjavik ausgebrochen," skrifar Die Welt.

Orðin sem við notum um atburði móta skilning okkar. Væntingar og ótti eru með í spilinu. Rýmingaráætlun var fyrir Grindvíkinga ef gosið yrði nærri byggð. Samhengi hlutanna skiptir sköpum. Séð frá útlöndum er gosið við túnfót Reykjavíkur.

Góðu heilli virðist Geldingadalsgosið hættulaust sjónarspil náttúrunnar. Haldi það áfram höfum við eitthvað að ræða annað en kófið.

 

 


mbl.is „Pínulítið gos“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nú er ræfilsgosið orðið fallegt og má til sannsvegar færa leiki maður sér að skapa úr þeim rósir og birkiskóga úr gulli.  Myndirnar sem skapast af pínulitlu spýjunum má einnig líkja við forynjur risaeðlurnar finngálkn,rétt eins og maður hugsar sér þær svona ógnandi með víðan skolt.Það var kominn tími til að leika sér að með náttúruöflunum án þess að borga fyrir það eina krónu - (hugsa þá til kostnaðarsömu loftslagsgjaldanna sem enga gleði skapa)- Gríla er löngu dauð... 

Helga Kristjánsdóttir, 21.3.2021 kl. 05:21

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Síðast þegar byrjaði að gjósa þarna gaus í 30 ár. Þetta verður kannski ekki svo ræfilslegt svona samanlagt árið 2051

Jón Steinar Ragnarsson, 21.3.2021 kl. 06:25

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Takk fyrir þetta Páll. Það er ekki að ástæðulausu að vælukynslóðin reynir nú að breyta merkingu tungumálsins á ýmsa vegu. Þannig má nefnilega breyta søgunni sem heimsmynd okkar byggir á. 

Ragnhildur Kolka, 21.3.2021 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband