Þinghóll, vanhelgun og Trumpismi

Þinghelgi er forn hugmynd um að þingstaðir njóti friðar umfram aðra staði. Bandaríkjamenn vanhelguðu sinn Þinghól í fyrradag. Innanríkismál ef viðlíka gerðist í Kiev, Róm eða Reykjavík.

Aldeilis ekki þegar um er að ræða Washington. Vanhelgunin er stórfrétt um alla heimsbyggðina. Skýringin er sumpart að Bandaríkin eru stórveldi og meint bólverk frelsis og lýðræðis. En stærsti hluti skýringarinnar er sitjandi forseti, Donald Trump.

Trump verður hálfáttræður í sumar. Ef vandamálið væri hann sem slíkur hverfur ergelsið er karlinn verður elliær eða fellur frá, hvort heldur sem kemur fyrr.

En Trump er ekki vandamálið, það vita allir sem fylgjast með pólitík, heldur Trumpismi.

Trumpismi er útslag fyrir reiði og óþol breiðs hóps þjóðfélagsþegna víða á vesturlöndum. Brexit sumarið 2016 var Trumpismi og það var ekki fyrr en um haustið sem Dónald fékk kjör fyrir vestan.

Vaxandi hópur fólks telur samfélagið ekki virka fyrir sig heldur útlendinga og alþjóðlega sérfræðingastétt er lítur á heiminn allan sem sinn vettvang. Þeir alþjóðlegu vilja segja fólki í hverri sókn og hverjum hreppi hvernig það eigi að lifa lífinu.

Sérfræðingastéttin hefur aftur ekkert lögmæti hjá hversdagsfólki sem ann sinni sveit, sínu héraði, landshluta eða þjóðríki. Til að bæta gráu ofan á svart vita sérfræðingarnir alls ekki hvernig á að reka samfélag. Þeir lifa í bergmálshelli háloftanna, Zoom-fundum á veirutímum, og flakka um heimsálfur eins og rótlaust þangið til að boða samfélag án heimkynna.

Valdastétt án lögmætis og kunnáttu er vitanlega ekki á vetur setjandi. Skriftin á veggnum verður ekki skýrari. Heimsþorpið er draumsýn fárra en martröð fjöldans sem leitar á náðir Trumpisma.

Í vestrænum ríkjum er frjór akur fyrir Trumpisma, sem vitanlega heitir staðbundnum nöfnum. Þinghóll er víðar en í Washington.

 

 

 


mbl.is Biden: „Við sáum hvað var í uppsiglingu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Enn og aftur vel mælt.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 8.1.2021 kl. 08:59

2 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Það er ekkert skrítið þó að Biden og co hafi "séð hvað var í uppsiglingu", þau eru búin að vera hvetja áfram svona hegðun seinustu 4+ árin.. Til hamingju til þeirra, þetta er samfélagið sem þau hafa búið til!

Halldór Björgvin Jóhannsson, 8.1.2021 kl. 09:36

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Tek undir það Ómar; Eftirsjá af Gunnu sem var í sinni sveit og öllum hinum

Helga Kristjánsdóttir, 8.1.2021 kl. 13:10

4 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Vel mælt, takk.

Benedikt Halldórsson, 8.1.2021 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband