Lögregluæfing í sorg og depurð

Lögreglan er komin í hlutverk sálnahirðis sem raunmæddur leiðbeinir villuráfandi í kófinu og brýnir til sóttvarna. Uppljóstrar eru á hverju strái sem rapportera ólögmætar samkomur þeirra syndugu.

Siðabrot eru samviskusamlega skráð í löggufréttir dagsins sem verða fóður i einelti á samfélagsmiðlum - iðulega með stuðningi fjölmiðla.

Eftir því sem best er vitað sinnir lögreglan starfi sinu af mannúð og sanngirni. Lögreglan ber ekki ábyrgð á eineltinu þótt hún skaffi fóðrið.

Við sem keppumst við að styðja yfirvöld í sóttvörnum verðum þó að vekja athygli á að ekki er heppilegt að lögreglan útvíkki starfssvið sitt og taki að sér sálgæslu samfélagsins og  úrskurði í fréttum hverjir séu verðugir og hverjir óverðugir. Við erum mörg Víðir. 

Lögreglan þarf að standast freistingu fjölmiðla, uppljóstrara og virkra í athugasemdum að útvega sökudólga til þjóna lund rétttrúnaðarins.

Kófið er undantekningarástand. Í slíku ástandi skríða undan steini miður geðþekkar kenndir mannssálarinnar. Sérhver sálnahirðir ætti að vera meðvitaður um það.


mbl.is „Ég skil þetta bara ekki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er nú "RAPPORTERA" orðið íslenskt orð??????'

Sigurður I B Guðmundsson, 25.12.2020 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband