Sigmundur Davíð þorði, aðrir voru huglausir

Ný bók, Afnám haftanna, eftir Sigurð Má Jónsson fjallar um þrekvirki ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs að leysa úlfakreppuna eftir hrun þegar þrotabú föllnu bankanna ógnuðu efnahagslegu og pólitísku lífi þjóðarinnar.

Stærð þrotabúanna var slík að eigur þeirra réðu úrslitum um það hvort ríkissjóður og krónan stæðu eða féllu.

Sigmundur Davíð tók ekki við góðu búi sumarið 2013. Vinstristjórn Jóhönnu Sig. stundaði hagstjórn í anda múgræðis enda örvinglaður Íslandslýður sem kaus vinstrimenn til valda vorið 2009. Fyrsta verkið vinstrimanna var að lýsa yfir pólitískri uppgjöf Íslendinga með aðildarumsókn til Evrópusambandsins, dagsett 16. júlí 2009.

Næsta verk þrotafólksins í Vinstri grænum og Samfylkingu var Icesave-uppgjöfin gagnvart Hollendingum og Bretum. Skuldir einkabanka voru færðar yfir á íslenskan almenning. Sigmundur Davíð, þá upprennandi stjórnmálamaður, kom, sá og sigraði í þeirri deilu - undir merkjum InDefense. Um þann hóp segir í meistararitgerð:

Sjaldgæft er að almennir borgarar skipti sér jafn ötullega af milliríkjadeilu og InDefence-hópurinn gerði. Þeir háðu baráttu sína í anda frelsishetja nítjándu aldar, enda var mjög meðvitað viðhöfð afar þjóðernisleg orðræða til fulltingis málstaðnum sem þeir börðust fyrir.

Íslenskri þjóð til tekna sá hún mannkosti Sigmundar Davíðs og krýndi Framsóknarflokkinn undir hans forystu sigurvegara kosninganna 2013. Þrotavinstrinu var vísað út í ystu myrkur. Samfylkingin tapaði tveim þriðju atkvæða sinna og fylgi vinstri grænna helmingaðist.

Bók Sigurðar fjallar um vinnuna við að lagfæra handvömm, úrræðaleysi og vangetu þrotafólksins til vinstri. Engin lausn var í sjónmáli, aðeins pólitískur vilji.

Bókin Afnám haftanna er sneisafull af upplýsingum um hvernig einbeittur pólitískur vilji skóp nýjar forsendur fyrir endurreisn Íslands eftir hrun. 

Frelsishetjan frá 19. öld stendur keik í styttulíki á Austurvelli. Bjargvætturinn snemma á 21. öld fær þann sóma sem honum ber í fyllingu tímans þegar RÚV-hávaði líðandi stundar er öllum gleymdur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ívar Ottósson

Þú gleymir að minnast á að bjargvætturinn hrökklaðist úr enbætti forsetisráðherra og svo úr formannstólnum í framsókn í framhaldinu.

Nú klaustursmálið verður jú að fylgja með ekki satt, honum verður semsagt fyrir ýmislegt minst.  

Ívar Ottósson, 21.5.2020 kl. 15:22

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er eðli svinanna að róta i skitnum. 

Ragnhildur Kolka, 21.5.2020 kl. 16:27

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Bjarni var einbeittur með honum. Þeir voru glæsilegir þegar þeir kynntu stöðugleikaframlagið og björguðu þjóðinni frá hengifluginu.

Halldór Jónsson, 21.5.2020 kl. 16:29

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

En Bjarni var líka fljótur að stinga hann í bakið til

bjarga hag engeyjarættarinnar.

Það hefði hann betur látið ógert og þeir tveir

ALDREI að boða til kosninga vegna hrópa og mótmæla

vintra liðsins.

En því miður hentaði það honum frekar en að standa

eibeittur með því góða sem þeir tveir voru að gera.

Sigurður Kristján Hjaltested, 21.5.2020 kl. 17:49

5 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Get ekki stillt mig um að véfengja málflutning sem telur fylleríisraus samflokksmanna Sigmundar Davíðs innlegg í umræðuna um viðbrögð við aðsteðjandi efnahagasvanda. Svona hundalógík á ekki heima hér - en málfrelsið leyfir mönnum að tala í austur þegar umræðan er í vestur!

Flosi Kristjánsson, 21.5.2020 kl. 17:49

6 Smámynd: Ívar Ottósson

Ragnhildur, er algjörlega sammála þér en á allt öðrum forsendum.

Flosi, Páll talar um framtíðar sóma SDG og fer um víðan völl en best er nú að taka allt með....sómi manns er nefnilega allt og ekki bara sérvalið.

Ívar Ottósson, 21.5.2020 kl. 22:22

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ný athugasemd "Afnám fantana" er stutt og lýgin það finnst ekkert þrekvirki né  sómi í henni. 

Helga Kristjánsdóttir, 21.5.2020 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband