Trump heiðarlegasti forsetinn

Trump er heiðarlegasti seinni tíma forseti Bandaríkjanna. Nei, staðhæfingin kemur ekki frá Fox-fréttum eða fréttablaði Ku Klux Klan heldur stórblaðinu Washington Post sem er í óvinaliði forsetans.

Dálkahöfundurinn Marc A. Thiessen segir Trump heiðarlegan á þann mælikvarða sem öllu skiptir fyrir forseta - og stjórnmálamenn almennt - sem er hvort hann haldi kosningaloforðin.

Og þar stendur Donald sterkur. Hann lækkaði skatta, lækkaði atvinnuleysi þeldökkra, flutti sendiráð Bandaríkjanna til Jerúsalem, hætti í loftslagssirkusnum, flutti iðnaðarstörf heim til Bandaríkjanna, setti ferðabann á múslíma og skar niður íþyngjandi regluverk sem hamlaði atvinnulífinu. Trump gaf loforð og efndi þau.

Jú, segir Thiessen, forsetinn tístir oft ýkjum og ósannindum. En hann er orðheldnari en flestir aðrir forsetar Bandaríkjanna síðustu áratugina. Það má treysta kosningaloforðum fasteignasalans frá New York.


mbl.is Trump segir ósatt um fólkið í göngunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Bravó, þetta er sannleikurinn

Halldór Jónsson, 24.10.2018 kl. 07:45

2 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Þá eru bara 2 stærstu eftir. Drain the Swamp og Lock her up.

Guðmundur Böðvarsson, 24.10.2018 kl. 10:46

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Guðmundur, það er allt í ferli, kemur á settum tíma.

Hvað Ku Klux Klan varðar, þá er sá hópur undirlagður af Demókrötum og því ekki við því að búast að þeir segi nokkuð gott um forsetann.

Tómas Ibsen Halldórsson, 24.10.2018 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband