Kerfi sem lifa á vandamálum

Ef tekst að fá hljómgrunn fyrir manngerðan vanda, t.d. losun gróðurhúsaloftegunda, spretta óðara fram hagsmunir sem nýta sér vandann til ábata, bæði á vettvangi stjórnmála og viðskipta.

Þessir hagsmunir mynda kerfi sem þrífst á að viðhalda og styrkja þá sannfæringu almennings að vá sé yfirvofandi. Til að leysa meintan vanda þarf að setja peninga í rannsóknir og varnir en þó fyrst og fremst allskonar kynningu og markaðsstarf sem viðheldur athyglinni á meintum vanda.

Kerfin sem lifa á vandamálum eru síðust til að viðurkenna að meint vandamál voru e.t.v. úr lausu lofti gripin eða stórlega ýkt.


mbl.is Kynnti nýja aðferð í stjórnmálunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 "Djöfull er þetta góð ræða" Sigmundar, meina það en orðbragðið hef ég eftir vistmanni á Kópavogshæli.Presturinn minn blessaður Árni Pálsson heitinn,söng stundum messu á Kópavogshæli,en gætti þess að hafa þær ekki of langar.Allir sátu hljóðir yfir einni slíkri í den og hlýddu á stólræðu hans,þegar einn þeirra gall við með þessari hástemmdu viðurkenningu.Séra Árni sem var allra manna ljúfastur og mikill humoristi,hafði því gaman af þótt léti ekki á neinu bera þá. 

Helga Kristjánsdóttir, 23.4.2018 kl. 04:50

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Don Quixotar stjórnmálanna kjósa að berjast við vindmyllur af því að óttinn við heimsendi er svo ríkur í mannskepnunni. Og þar liggja líka peningarnir. Að framkvæma það mögulega þykir þá lágkúruleg.

Gott hjá Sigmundi.

Ragnhildur Kolka, 23.4.2018 kl. 07:56

3 Smámynd: rhansen

Ræða SDG SNILD ,sem i raun kom öllum i opnaskjöldu en afhjupaði i raun þvilikt bull þessi loftslagsmál eru  ...Kerfin  sem spila með allann heiminn sem sperrir asnaeyrun og hleypur af stað . Peningaplokk eins og flest litil  skynsemi á bak við .........En sammála að allir eigi að ganga vel um jörðina sina ...það er allt önnur Ella 

rhansen, 23.4.2018 kl. 11:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband