Tyrkland eða Kúrdistan

Innrás Tyrkja í Sýrland er til að koma í veg fyrir að nýtt ríki Kúrda, Kúrdistan, verði myndað á suðurlandamærum Tyrklands. Kúrdar eru taldir um 30 til 35 milljónir, dreifðir um Tyrkland, Sýrland, Írak, Íran og Armeníu.

Að nafninu til eru Tyrkir bandamenn Bandaríkjanna, enda Nató-þjóð. En Bandaríkin hafa stutt hersveitir Kúrda til að ryðja úr vegi sveitum Ríkis íslam sem gerðu tilraun til að stofna íslamskt trúarríki í Sýrlandi og Írak.

Í seinni tíð halla Tyrkir sér að Rússum, sem eru bakhjarlar Assad Sýrlandsforseta. Tyrkjum er í mun að kæfa Kúrdistan í fæðingu. Ef það tekst eykst áhrifavald þeirra fyrir botni Miðjarðarhafs. En Erdogan Tyrklandsforseti nær ekki markmiði sínu nema með a.m.k. vinsamlegu hlutleysi annarra tveggja stórveldanna, Bandaríkjanna eða Rússlands.


mbl.is Hersveitir Tyrkja ráðast inn í Sýrland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Kúrdar eru þjóð sem Tyrkir vilja ekkert með hafa og gera sitt til að eyða þeim, þeim finnst óþægilegt að hafa þá í nágreni við sig. Sameinuðu þjóðirnar aðhafast ekkert eða lítið til að annast hagsmuni Kúrda.

"Palestínumenn" eru EKKI þjóð og hafa aldrei verið. Tyrkir styðja "Palestínumenn" í þeirri viðleitni að þeir fái afmarkað landsvæði sem þeir geti kallað sitt og það jafnvel innan landamæra Ísraels. Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið málstað "Palestínumanna" sem EKKI er þjóð upp á arma sína og verja þá á bak og fyrir gegn meintu ofbeldi Ísraelsmanna í þeirra garð.

Tvískinnungur Tyrkja og Sameinuðu þjóanna er alger.

Tómas Ibsen Halldórsson, 22.1.2018 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband