Saurborgin Reykjavík

Reykjavíkurborg dælir óhreinsuðu skolpi í tonnavís út í Skerjafjörð án þess að vara almenning við menguninni.

Kjörnir fulltrúar í borgarstjórn fela sig á bak við embættismenn sem segja ástandið ,,bagalegt".

Málið er nokkru alvarlegra en svo að það teljist ,,bagalegt."

 


mbl.is Saurgerlamagn yfir mörkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þegar fellibylurinn Katrín gekk á land í Louisiana og Texas var W kennt um. Alheims bankahrunið 2008 var klínt á Geir og Davíð, en mekkanísk bilun í tæknibúnaði Orkuveitunnar, sem er alfarið í eigu Reykjavíkurborgar, kemur Degi B ekkert við. Eru menn að lesa hlutina rétt?

Ragnhildur Kolka, 7.7.2017 kl. 17:13

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Bilun í einni hreinsunarstöð í Reykjavík, slæmt mál að sjálfsögðu.

Fjölmiðlar hafa haft mikinn áhuga á því máli.
Hefur enginn fjölmiðill áhuga á að allt skólp með öllu tilheyrandi fer óhreinsað í Eyjafjörðinn ?

...

Allur úrgangur frá Akureyri fer óhreinsaður um gátt norðan við Krossanes og oft mælist saurgerlamengun mjög mikil á svæðinu.
Nú virðist sem enn einu sinni sé búið að slá væntalegri hreinsistöð á frest vegna tilboðaleysis.

Ég vildi að fjölmiðlar hefðu jafn mikinn áhuga á að fjalla um þessi mál við Eyjafjörðinn eins og þessa tímabundnu bilun í Reykjavík.

Jón Ingi Cæsarsson, 7.7.2017 kl. 20:34

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Höfuðborgarsvæðið er eina svæðið á Íslandi þar sem skolp og fráveita er hreinsuð, allir hinir á Íslandi þurfa að þola þetta alla daga allan ársins hring.

Jón Ingi Cæsarsson, 7.7.2017 kl. 20:37

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Kynntu þér málið betur Jón Ingi. Það er mun víðar sem skolp er hreinsað og dælt hundruð metra út fyrir fjörur en á höfuðborgarsvæðinu. Í sveitum landsins getur enginn byggt sér kamar án þess að við hann sé settur hreinsibúnaður (rotþró), sem skilar afurðunum hreinum út í náttúruna.

Vel getur verið að Akureyringar og kannski fleiri sveitarfélög dæli enn óhreinsuðu skolpi í fjörur, vonandi eru þau sveitarfélög þá með undanþágu frá lögum um hreinsun á skolpi.

Gunnar Heiðarsson, 8.7.2017 kl. 07:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband