Össur talar um allt - nema tap Samfylkingar

Fyrsti formaður Samfylkingar og ráðherra til margra ára, Össur Skarphéðinsson, kennir Vinstri grænum um að smáflokkastjórnin varð ekki að veruleika. Hann ræðir um lífsmöguleika nýrrar stjórnar, efnahagshorfurnar og samvinnu stjórnarandstöðunnar.

En Össur segir ekki eitt aukatekið orð um flokkinn sem árið 2009 fékk 30 prósent fylgi en aðeins 5,7 prósent stuðning í nýafstöðnum þingkosningunum.

Össur sem innanbúðarmaður gæti veitt innsýn í hroðalega stöðu Samfylkingar. En Össur segir pass um það sem hann þekkir best - en er gjöfull á það sem hann veit minna um. Erindi Össurar í pólitíska umræðu ávallt að láta gott af sér leiða. Eins og dæmin sanna.


mbl.is VG geti sjálfum sér um kennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Það færi Össuri best að halda sig til hlés og láta ekki nokkurn mannn sjá sig eða heyra.

Hrossabrestur, 2.1.2017 kl. 20:13

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Samt tekur sig upp gömul gretta og eftirvænting að lesa hér fleiri áminningar til þessa fyrrum ráðherra.- 
Mynd hans og erindi hræðir ekki meir en "pappírslögga" í umferðinni.  


  

Helga Kristjánsdóttir, 2.1.2017 kl. 23:37

3 Smámynd: Jónatan Karlsson

Össur er skemmtilegur sprellikarl, en þó hann sé ótrúverðugur, þá skrifast endalok Samfylkingar hugsjónarinnar fremur á Dag flugdólg og Hjalla á hjólinu.

Jónatan Karlsson, 3.1.2017 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband