Trump-Pútín friðarbandalagið og herskáir vinstrimenn

Hægrimaðurinn Patrick J. Buchanan varar við samvinnu herskárra vinstrimanna í Demókrataflokknum og kaldastríðshauka í Repúbikanaflokknum, sem vilja grafa undan friðarbandalagi Donald Trump og Pútín Rússlandsforseta.

Buchanan er ritstjóri tímaritsins The American Conservative og var ráðgjafi forseta Repúblíkana, þeirra Nixon, Ford og Reagan. Stuðningur hans við Trump og friðarstefnu gagnvart Rússum er á öndverðum meiði við herskáa stefnu Obama forseta og Clinton-hjónanna.

Í Bandaríkjunum er vaxandi vitund um að herská stefna vinstrimanna og kaldastríðshauka úr röðum hægrimanna geti leitt til hernaðarátaka við Rússland, jafnvel þriðju heimstyrjaldar.

Donald Trump er talinn geta dregið úr spennu milli kjarnorkuveldanna, sem hófst við lok kalda stríðsins með útþenslu áhrifasvæðis Nató að rússnesku landamærunum. Í tímaritinu National Interest er vegvísir að raunsærri pólitík Bandaríkjanna gagnvart Rússlandi.

Vinstrimenn í Evrópu eru óðum að átta sig á að bandalag Pútín og Trump boðar hamskipti í pólitískri orðræðu. Síðustu árin eru vinstrimenn í fararbroddi kaldastríðsáróðurs um að Rússland sé upphaf og endir illskunnar í heiminum, hvort heldur í Úkraínu eða Sýrlandi. Þar eru evrópskir vinstrimenn málpípur Obama forseta og Clinton-hjónanna.

Miðstöð herskárra vinstrimanna í Evrópu er Evrópusambandið. Innvígðir ESB-sinnar, til dæmis Guy Verhofstadt og Joschka Fischer, eru óþreytandi að útmála Rússland sem óvin siðmenningar.

Dýpri rökin fyrir afstöðu evrópskra vinstrimanna til Rússlands eru þau að án óvinar í austri er ekki hægt að forða Evrópusambandinu frá upplausn.

 


mbl.is Hefði getað sigrað Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Obama hefur sýnt af sér mikinn hroka. Hann hefur stuðlað að sundrungu Bandarísku þjóðarinnar, hann hefur einnig lagt sig allan fram við að espa Rússa til ófriðar. Svo vitum við öll um arabíska "vorið", afleiðingar þess eru þær hörmungar sem mið-austur lönd eru nú að kljást við og ekki er séð fyrir endann á. Svo hreykir hann sér af herlegheitunum. Mikið er ég feginn að hans tími sem forseti er næstum á enda.

Tómas Ibsen Halldórsson, 27.12.2016 kl. 11:15

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Nixon sneri við á braut ýfinga við Kínverja. Ef Trump stendur við það að leita sáttar og samlyndis við Rússa en stuðlar að minni ýfingum Bandaríkjamanna og Kínverja verður það jákvætt fyrir heimsstjórnmálin.  

Ómar Ragnarsson, 27.12.2016 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband