Sunnudagur, 16. október 2016
Píratar taka völdin fyrir kosningar
Í lýðræðisríkjum eru það kjósendur sem ákveða hverjir skulu fá völdin í hendur. Það er gert í kosningum. Píratar lýsa frati á vilja almennings með því að boða nýja ríkisstjórn kortéri fyrir kosningar.
Stjórnunaraðferð Pírata er þessi: skapa óánægju og óvild í samfélaginu, t.d með fjöldamótmælum og óhroða á samfélagsmiðlum. Sérstakt áhugamál Pírata er illmælgi um land og þjóð. Þessa pólitík hafa Píratar stundað allt kjörtímabilið.
Þegar nær dregur kosningum og almenningar áttar sig á eðli Pírata fellur gengi þeirra í skoðanakönnununum.
Viðbrögð Pírata eru að sniðganga lýðræðið og taka völdin fyrir kosningar. Þannig virkar píratalýðræðið.
Píratar útiloka stjórnarflokkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þegar Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur lofuðu fyrir kosningarnar 1963, 1967 og 1971 að starfa saman í ríkisstjórn eftir kosningar ef þeir fengju meirihluta í kosningunum, voru þeir þá að "sniðganga lýðræðið og taka völdin fyrir kosningar"?
Ómar Ragnarsson, 16.10.2016 kl. 14:23
Um leið og ég óska höfundi til lukku með að geta skrifað nú pistla í einn sólarhring án þess að ráðast á starfsfólk RÚV með árróðursskrifum sínum (var slíkt kennt í blaðamannanáminu í Norge ?) og um leið að fá að njóta þess sem téð starfsfólk fær ekki, að tjá sig á samfélagsmiðlunum, þá verð ég að minna höfund á lýðræðisríkið Danmörku, sem já allt í lagi, er meðlimur í vonda, vonda ESB, ég veit en þar er reglulega boðið upp á samsteypustjórnir fyrir kosningar, kosningabandalög, þannig að höfundu mætti nú minnka pirring en um leið víkka út sjóndeildarhringinn og skoða e-ð umfram Framsókn eða Sjalla.
Sigfús Ómar Höskuldsson, 16.10.2016 kl. 14:43
"Í lýðræðisríkjum eru það kjósendur sem ákveða hverjir skulu fá völdin í hendur"
Nú væri gott að fá að vita hvar sá reitur er á kjörseðlinum?
Samkvæmt stjórnarskránni er það nefninlega forsetinn sem skipar ráðherra og skiptir með þeim verkum (þann hóp köllum við svo ríkisstjórn).
Þegar kjósandi merkir við tiltekinn listabókstaf á kjörseðli er hann að greiða þeim einstaklingum sem þann lista skipa, atkvæði til þess að taka sæti á Alþingi. Það er ekki það sama og að taka sæti í ríkisstjórn.
Á Íslandi fá kjósendur eingöngu að velja hverjir fái löggjafarvaldið í hendur, en ekki hverjir fái framkvæmdavaldið í hendur.
Er síðuhöfundur að gefa í skyn að Ísland sé ekki lýðræðisríki?
Guðmundur Ásgeirsson, 16.10.2016 kl. 15:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.