Píratar tapa, Samfylking minnst og Framsókn ekki minni í öld

Píratar missa fylgi og Samfylking mælist minnst þeirra flokka sem eiga fulltrúa á alþingi. Jafnvel Björt framtíð, fyrir skemmstu virtist ætla að falla af þingi, skýtur Samfylkingu ref fyrir rass.

Sjálfstæðisflokkur er nokkru fyrir neðan kosningafylgi sínu, samkvæmt þessari könnun, og Framsóknarflokkur stefnir í sína verstu útkomu í 100 ára sögu flokksins.

Formannsskipti í Framsóknarflokknum kortéri fyrir kosningar var pólitískur afleikur aldarinnar.


mbl.is Björt framtíð stærri en Samfylkingin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Bjarni

Var það meiri afleikur en að vera forsætisráðherra og ljúga að fréttamönnum rétt áður en hann rauk út í fússi þegar hann sá að upp um hann hafði komist?

Jón Bjarni, 13.10.2016 kl. 19:57

2 identicon

Framsóknarflokkurinn hefur oft mælst minni í skoðanakönnunun, sagnfræðingur góður, meira að segja undir forystu átrúnaðargoðs þíns.

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 13.10.2016 kl. 21:32

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ekki svona hrikalega eins og Samfó,þegar jóhanna hélt hún væri að verða krónprinsessa Evrópusambandsins.-Af hverju segið okkur sem ekki vitum hverju Sigmundur laug,? Koma svo fóstbræður Jón og Sigurður.

Helga Kristjánsdóttir, 14.10.2016 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband