Bankar eru kvenfjandsamlegir

Mestur launamunur kynjanna er í í fjár­mála- og vá­trygg­inga­starf­semi, eða 37,5 prósent. Rökrétt ályktun er að fjármálastarfsemi, eins og hún er rekin, sé kvenfjandsamleg.

Minnsti launamunur kynjanna er í heil­brigðis- og fé­lagsþjón­ustu, 7,4%. Meiri launamunur er í einkarekstri en opinberum.

Fjármálastarfsemin verður að útskýra hvers vegna hún er kvenfjandsamleg og hvað atvinnugreinin ætlar að gera til að bæta þar úr.


mbl.is Launamunur kynjanna 18%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Ég held að það ætti frekar að gera almennilega könnun sem sýnir rétta mynd, þessi samanburður sem tekinn er saman hérna er rosalega villandi og sýnir enganveginn það sem hún ætti að vera sýna. Þetta eru beinlínis lygar með tölum settar fram til að valda togstreitu.

Hag­stof­an seg­ir að hér sé launamun­ur skil­greind­ur sem óleiðrétt­ur þar sem ekki er tekið til­lit til skýr­ing­arþátta sem geta haft áhrif á laun ein­stak­linga.

„Dæmi um slíka skýr­ing­arþætti eru starf, mennt­un, ald­ur, starfs­ald­ur og fleira. Þannig er ekki tekið til­lit til þess að starfs­val kynj­anna er oft á tíðum ólíkt. Þá ber að at­huga að greidd laun fyr­ir yf­ir­vinnu og fjöldi yf­ir­vinnu¬stunda er inni í út­reikn­ing­um en hver yf­ir­vinnu­stund er að jafnaði dýr­ari en hver stund í dag­vinnu."

Ef atvinnurekendur vissu það að þeir gætu komist upp með það að hafa starfsmann í sömu vinnu á 18% lægri launum þá væri ekki einn einasti kvenmaður atvinnulaus í heiminum.

http://www.cbsnews.com/news/the-gender-pay-gap-is-a-complete-myth/

Halldór Björgvin Jóhannsson, 18.5.2015 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband