Aðgerðafréttamennsku RÚV verður að uppræta

RÚV tileinkar sér á seinni árum aðgerðafréttamennsku í þágu málstaðar sem stjórnendum fréttastofu er kær. Með sameiningu fréttastofu sjónvarps og útvarps var feikilegu valdi safnað í hendur yfirstjórnar fréttadeildar sem stans- og linnulaust gat hamrað á sama fréttamatinu í ótal fréttatímum.

Dæmi um skipulega misnotkun á RÚV er hvernig fréttastofu er beitt í þágu ESB-sinna. Mörg dæmi eru um skýra og skipulega misnotkun á RÚV. Heila helgi í ágúst sl. lét RÚV eins og þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-málið væri brýnasta viðfangsefni íslenskra stjórnmála. Í sex aðalfréttatímum í röð var þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-umsóknina aðalmálið. Í febrúar sl. bjó RÚV til frétt, já, RÚV laug upp frétt, um mikinn stuðning þjóðarinnar við upptöku evru.

Í síðustu viku hefur alþjóð mátt horfa upp á herferð RÚV í þágu stjórnarandstöðunnar og ESB-sinna til að klekkja á ríkisstjórninni. Þar er reynt að búa til ágreining milli ríkisstjórnarflokkanna og búinn til fréttasamsetningur í þágu tiltekins málstaða, jafnframt því sem þöggun var beitt á upplýsingar sem ekki þjónuðu málstaðnum.

Skefjalaus misnotkun á RÚV verður að linna. Nýr útvarpsstjóri getur ekki sópað undir teppið borðleggjandi dæmum um hvernig fréttastofa RÚV á ekki að starfa.

 


mbl.is Jafnrétti gagnvart viðmælendum RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hér er pólitískt stríðsástand,þar sem stjórnarandstaðan er betur búin (RÚV m.a.) vopnum,með áralanga þjálfun í beitingu þeirra. Það sýndi sig m.a.er hún náði völdum 2008/9. Ólík viðbrögð forystumanna þeirra við hrun,færði okkur sanninn um það. --- Er til of mikils mælst að andstæðingar ESB fái aðgang að Rúv til andmæla. Best væri að þeir helstu fengju að karpa við ESB,sinna í Útvarpssal,til að gæta alls jafnræðis væri e.t.v. skákklukku notuð til mælinga á tíma (eða flytja Alþingis hvellandi bjölluna).

Helga Kristjánsdóttir, 8.3.2014 kl. 11:47

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Eftir það sem á undan er gengið, þá dugar ekki nýr útvarpsstjóri, hversu ágætur sem hann gæti mögulega verið.  Sú tíð er einfaldlega liðin.

Á meðan við þurfum að búa við nauðungaráskrift að þessari stofnun og á meðan þessi stofnun getur þanið sig út með því að slæma klónum í skattfé okkar eftir þörfum, þá verður aldrei sátt um þessa stofnun sem studdi til valda vitlausustu ráðherra Íslandssögunnar.

,

Hrólfur Þ Hraundal, 8.3.2014 kl. 14:14

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek 100% ndir þennan tímabæra pistil þinn, Pál..

Jón Valur Jensson, 8.3.2014 kl. 14:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband