Icesave-Benni tekur ESB-snúning til vinstri

Benedikt Jóhannesson er óþreytandi baráttumaður fyrir afnámi fullveldisins. Hann bjó til Icesave-hópinn sem vildi eindregið að ófæddir Íslendingar tækju á sig 750 milljarða kr. skuld - í gjaldeyri.

Benedikt rekur annan hóp sem heitir Sjálfstæðir Evrópumenn og þeir renna stundum inn í enn annan hóp sem heitir Já Ísland. Nú, nú, Sjálfstæðir Evrópumenn vilja ólmir halda ESB-umsókn Samfylkingar og VG lifandi, samkvæmt fréttum.

Sjálfstæðishugur Benedikts og samherja er svo gegnheill að þeir þiggja með þökkum utanríkisstefnu vinstrimanna og gera að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Rétt athugað hjá þér kæri Páll, sem oftast nær.

Landssölumenn í mörgum flokkum tala um svik við stefnu Sjalfstæðisflokksins. Þeir ættu að skoða eftirfarandi því þá verður þeim ljóst að Sjálfstæðisfokkurinn er trúr þeiri breiðfylkingu nærri 1.600 manna sem kemur saman annað hvert ár og markar stefnunaéins og þeim er skylt :

Samkvæmt Skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins þá fer landsfundur með æðsta vald í málefnum flokksins og markar stefnu hans - skýrara getur það varla orðið og liggur stefnan fyrir á veraldarvefnum þar sem allir geta nálgast hana.

Þar er stefna flokksins um aðild að Evrópusambandinu áréttuð á svipaðan hátt og hún hefur verið um áratuga skeið á síðasta landsfundi og þar er einig sérstaklega fjallað um þjóðaratkvæði :

„Evrópa er eitt mikilvægasta markaðs- og menningarsvæði Íslands og því nauðsynlegt að tryggja áfram opinn og frjálsan aðgang að innri markaði Evrópusambandsins svo sem gert er á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Nýta ber þau margvíslegu tækifæri sem samningurinn veitir til að fylgja eftir hagsmunum Íslands gagnvart öðrum ríkjum Evrópu. Landsfundur telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að standa fyrir utan Evrópusambandið.

Áréttað er að aðildarviðræðum við ESB verði hætt og þær ekki teknar upp aftur nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Landsfundurinn mótmælir íhlutun sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi í stjórnmálaumræðu þjóðarinnar og telur óhæfu að stækkunardeild ESB haldi úti starfsemi hér þar sem lagst er á sveif með einu stjórnmálaafli gegn öðrum. Evrópusambandinu verði gert að loka kynningarskrifstofu þess hér.“

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 21.2.2014 kl. 17:23

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þversögn í lifanda lífi, þessi maður.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.2.2014 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband