Almenningur stærsti fjármagnseigandinn

Almenningur myndi tapa mest á ótímabæru afnámi verðtryggingar. Í gegnum lífeyrissjóði eru launþegar stærsti fjármagnseigandinn á Íslandi. Verðtrygging þjónar því hlutverki að lántakendur borgi tilbaka þá fjárhæð sem þeir tóku að láni, auk vaxta.

Fyrir daga verðtryggingar voru vextir neikvæðir; þeir sem tóku lán borguðu ekki nema hluta til baka og lánveitandinn sat uppi með tapið.

Í umræðunni er málum iðulega stillt þannig upp að verðtrygging sé í þágu banka og kapítalista. Því fer fjarri. Verðtryggingin er í fyrsta lagi til að tryggja launþegum lífeyrisgreiðslur í framtíðinni. Í öðru lagi er verðtrygging efnahagsleg kjölfesta með því að hún dregur úr freistnivandanum sem okkur er allof tamur, að lifa um efni fram og treysta á aðrir borgi reikninginn.


mbl.is Takmarka verðtryggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband