Ópólitísk búsáhaldabylting og félagsauður stjórnmálaflokka

Borgarahreyfingin var tilraun til að veita útrás í þingkosningum reiðipólitíkinni eftir hrun. Fámennur þingflokkur hreyfingarinnar klofnaði strax og síðan urðu þrír þingmenn viðskila við baklandið.

Tvær ályktanir má draga af brotthvarfi Borgarahreyfingarinnar. Í fyrsta lagi að búsáhaldabyltingin var í þeim skilningi ópólitísk að hún fann sér hvorki stjórnmálavettvang né skipulagsform. Í öðru lagi að félagsauður starfandi stjórnmálaflokka er enn nægur til að laga sig að breyttum þjóðfélagsaðstæðum.

Í kosningunum 2009 kaus þjóðin þá flokka sem með nokkrum rökum má segja að báru ekki ábyrgð á hruninu, þetta á einkum við VG, og buðu valkost sem hentaði þjóð í taugaáfalli, sbr. ESB-stefnu Samfylkingar.

Eftir fjögur ára tilraunastarfsemi þakkaði þjóðin fyrir sig og sendi vinstriflokkana vorið 2013 í skammarkrókinn. 

Þjóðin þarf ekki fleiri valkosti í stjórnmálum en svona fjóra til fimm.


mbl.is Hreyfingin formlega lögð niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ertu að grínast? Tveir af öflugust Hreyfingarliðunum eru núna þingmenn. Reyndar í flokki Pírata, en það var líka aldrei markmið Hreyfingarinnar að lifa lengi.

Það færi líklega betur á því að stjórnmálasaga samtímans væri sögð af fólki sem var raunverulega á svæðinu þegar hún átti sér stað.

Guðmundur Ásgeirsson, 18.11.2013 kl. 22:50

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Voru þeir kumpánar Steingrímur og Össur ekki á svæðinu,hafa þegar skrifað samtíma stjórnmálasögu,já og líklega forsætisráðherra frú einnig.

Helga Kristjánsdóttir, 19.11.2013 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband