Besti flokkurinn gegn Sjálfstæðisflokknum

Í borgarstjórnarkosningunum mun valið standa á milli Besta flokksins og Sjálfstæðisflokksins. Besti flokkurinn var kosinn út á grín og andóf gegn ríkjandi stjórnmálahefð.

Núna er flokkurinn orðinn hluti af samtryggingunni og Jón Gnarr vill þægilega innivinnu í fjögur ár í viðbót. Reykvíkingar munu eflaust sjá aumur á Jóni Gnarr þótt heldur sé farin að súrna fyndnin.

Stærstu tíðindin í þessari könnun eru að vinstriflokkarnir eru pólitískt jaðarsport.

 

 


mbl.is Besti flokkur stærstur á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Páll, það er fokið í flest skjól ef stjórnmálaflokkarnir geta ekki boðið fram fólk sem kjósendur geta tekið fram fyrir dárann.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 21.9.2013 kl. 22:46

2 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Lénið „lending.is“ er skráð í eigu „Vefmiðlun ehf“ Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Land: IS. Netfang vefmidlun@vefmidlun.is. Skráð, 13. ágúst 2013.

Kristbjörn Árnason, 21.9.2013 kl. 23:20

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Eina vonin fyrir Sjálfstæðisflokkinn er að prófkjör skili nýju fólki inn í staðinn fyrir "draugana"sem nú eru í borgarstjórnarforustunn.Það vantar fólk með eitthvað hugmyndaflug og sem er laust við þennan atvinnupólititíkusar viðhorf.Varðandi athugasemd Kristbjörns hér að ofan:70000 manns skrifuðu sig á þennan undirskriftalista.Þetta er ekki pólitísk undirskriftasöfnun.

Jósef Smári Ásmundsson, 22.9.2013 kl. 02:32

4 Smámynd: Óskar

Það er besti flokkurinn eða gamla góða spillingin.  Valið er auðvelt eins og skoðanakannanir sýna.

Óskar, 22.9.2013 kl. 06:11

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

stærsta fréttin er að fólk vill flugvöllinn í burtu

xb sem ætlar að spila uppá flugvöllinnn þarf að hugsa sinn gang

Sleggjan og Hvellurinn, 22.9.2013 kl. 09:23

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef að (B) hefur bara eitt mál á stefnuskrá sinni "flugvöllurin verður áfram á sama stað," þá koma þeir í það minsta einum eða tveimur í borgrarráð.

Hvað hefur (B) marga í borgaráði í dag?

Kveðja frá Medína Sádi Arabíu.

Jóhann Kristinsson, 22.9.2013 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband