RÚV hælbítur forseta Íslands

Í frétt af auðgunarbroti 58 ára karlmanns gerir RÚV forseta Íslands nánast að vitorðsmanni með eftirfarandi fréttatexta

Samkvæmt heimildum Fréttastofu þurfti hann ekki að sitja af sér þann dóm að hluta eða öllu leyti því forseti Íslands náðaði hann. 

Látið er að því liggja að Ólafur Ragnar Grímsson nánast upp á einsdæmi náði brotamann til að hann geti haldið áfram iðju sinni við að hafa fé af fólki.

Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra útskýrir hvernig náðun brotamanna fer fram. Forseti Íslands er bundinn niðurstöðu náðunarnefndar og tekur ekki efnislega afstöðu til þess hverjir eru náðaðir og hverjir ekki.

RÚV sætir lagi að koma höggi á forseta Íslands með lúalegum hætti.


mbl.is Ákærður fyrir stórfelld fjársvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þess má geta að ævinlega er sagt í fréttum: Forseti íslands sæmdi í dag xx manns hinni íslensku Fálkaorðu. Samt er það sérstök Orðunefnd sem velur þá, sem orðuna hljóta. Á þá RUV að breyta sínum texta hvað varðar þetta?

Ómar Ragnarsson, 5.9.2013 kl. 11:45

2 Smámynd: Halldór Halldórsson

Ómar Ragnarsson! Mér finnst alveg sjálfsagt að í slíkum fréttum verði þess ávallt getið að forsetinn geri þetta að tillögu nefnda og nafngreina alla nefndarmenn. Jafnframt vildi ég gjarnan fá að sjá hvaða einstaklingar það voru sem mæltu með hverju erindi fyrir nefndunum. T.d. vildi ég gjarnan sjá þau fífl hengd út til þerris sem mæltu með náðun Sigurðar Kárasonar á sínum tíma!

Halldór Halldórsson, 5.9.2013 kl. 12:07

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er ekki Síður áhugavert að þessi náðunarnefnd kemur saman einu sinni i mánuði. Hreinsa þeir út jafnóðum og mokað er inn?

Ragnhildur Kolka, 5.9.2013 kl. 17:07

4 Smámynd: Eysteinn Pétursson

Hverjur voru í nefndinni, sem "náðuðu" Árna Johnsen um árið. Eða þurfti þá enga nefnd. Var forsetinn þá "ábyrgur"?

Eysteinn Pétursson, 5.9.2013 kl. 23:03

5 Smámynd: Jóhann Halldórsson

Árni Johnsen var ekkert "náðaður", hann afplánaði sinn dóm eins og allir aðrir, sem hjóta slíka dóma.

Jóhann Halldórsson, 6.9.2013 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband