Pyntingar í pólitík

Íslenskir ESB-sinnar fá reglulega tækifæri til að taka brjálæðiskast vegna þess að ríkisstjórnin bútar hægt og rólega niður ESB-umsóknina. Í stað þess að afhausa ESB-umsókn Samfylkingar strax eftir kosningar er fyrst gert hlé á aðildarferlinu, þá vinna stöðvuð í ráðuneytum og svo féllu IPA-styrkirnir dauðir.

Um tíma hélt RÚV við vonarglóðinni um þjóðaratkvæðagreiðslu en síðan var slökkt á henni. Núna eru það samninganefndirnar sem stendur til að leysa upp ,,til að þeir sem þar hafa setið geti snúið sér að öðrum verkefnum,“ segir utanríkisráðherra.

Við sérhvern áfanga í sundurlimun ESB-umsóknar gólar samfylkingarfólk, kveinkar sér og segir himinn og jörð um það bil að farast.

Ef það er skipulögð aðferðafræði að láta ESB-sinna kveljast sem lengst gengur það fjarska vel.

 


mbl.is Þingsályktun um ESB ekki bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Fyrst var salami-aðferðin notuð á íslenskar ríkisstofnanir en þu er henni beint að ESB-umsókninni. Kallað að gjalda líkum líkt.

Ragnhildur Kolka, 22.8.2013 kl. 14:22

2 identicon

Jamm, það er gaman að hlusta á vælið. Spurningin er bara hversu lengi þetta væl á eftir að endast áður en þetta fólk hættur þessari ESB áráttu og snýr sér að eitthverju öðru.

Sveinn Dagur Rafnsson (IP-tala skráð) 22.8.2013 kl. 19:29

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einmitt segið svo að við stöndum ekki í skilum og borgum fyrir okkur,þennan líka þunga vinstri handar kinnhest.

Helga Kristjánsdóttir, 22.8.2013 kl. 20:43

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Bjartur í Sumarhúsum skrifa pistil...gaman að sjá

Jón Ingi Cæsarsson, 23.8.2013 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband