Stefán Ólafs: ESB-málið brýtur Samfylkinguna

Samfylkingin er einsmálsflokkur sem skoðar Ísland og heiminn í ljósi Evrópusambandsins. Æ fleiri innvígðir samfylkingarmenn gefast upp á sértrúareinkennum Samfylkingar. Fyrir helgi sagði Jón Baldvin ESB-málið dautt. Í skrifar Stefán Ólafsson prófessor pistil með yfirskriftinni ,,Röng áhersla Samfylkingar."

Hér eru lykilsetningar í pistli Stefáns

Atvinnuleysi á Íslandi er nú rétt um helmingur af því sem mest varð fljótlega eftir hrunið. Það er mun betri útkoma en hjá öðrum kreppuþjóðum í Evrópu. Í kosningabaráttu Samfylkingarinnar sýnist mér að þetta mikilvæga innlegg sé varla nefnt og nær einungis talað um Evrópusambandsaðild.

og svo þessi

Allir vita að Samfylkingin er ötull talsmaður ESB aðildar. Það þarf ekki að kynna frekar en orðið er. Samfylkingin sem 10-15% flokkur mun hins vegar ekki gera nein kraftaverk sem koma Íslandi inn í ESB á næsta kjörtímabili

Forysta Samfylkingar, Árni Páll og Össur, heldur til streitu sértrúarhyggjunni og það mun skila Samfylkingunni smáflokkafylgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Hver rottan af annar stekkur frá borði sökkvandi Samfylkingar.

Gunnar Heiðarsson, 15.4.2013 kl. 10:51

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hún passar þá ekki lengur í fjórflokka-klíkuna

Helga Kristjánsdóttir, 15.4.2013 kl. 11:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband