Ragnar Arnalds til Katrínar: ekki láta VG brenna inni

Ragnar Arnalds fyrrum formaður Alþýðubandalagsins er einn af þeim fáu andstæðingum ESB sem enn eru í VG. Hann skrifar á Vinstrivaktina orðsendingu sem væntanlegur formaður ætti að taka til sín

Landsfundur VG verður að ganga hreint til verks að þessu sinni og segja landsmönnum afdráttarlaust að flokkurinn hafi afskrifað aðildarumsóknina. Flokkurinn getur ekki tregðast öllu lengur við að bjarga sjálfum sér út úr brennandi húsi, áður en það er um seinan af tómri tillitssemi við Samfylkinguna. Bergþóra átti þess kost að ganga út en kaus að brenna frekar inni í rekkjunni með bónda sínum. Varla ætlar VG fara að dæmi hennar.

Steingrímur J. seldi sálu sína til ESB-sinna. Spurningin er hvort sál Katrínar sé veðsett Brusselleiðangrinum.


mbl.is Katrín býður sig fram til formanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Er einhver svo vitlaus að trúa einhverju sem VG segir? Hvernig í veröldinni getur þessi flokkur farið fram á slíka trúgirni?

Halldór Jónsson, 17.2.2013 kl. 16:54

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Katrín mun alls engu breyta úr þessu og mun því ekki leysa flokkinn undan ESB ánauðinni, sem hefur eyðilagt þennan flokk.

Enda skiptir það brátt nánast engu máli því annaðhvort er flokkurinn á leið með að þurkast út af þingi eða hans bíður sú eyðimerkurganga að verða einangraður og áhrifalaus örflokkur.

Gunnlaugur I., 17.2.2013 kl. 17:21

3 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Helsta afrek Katrínar er að breyta einkaframtakinu Hörpu í martröð skattgreiðenda. Katrín lagði sig alla fram um að koma einkaskuldum einkabanka yfir á herðar skattgreiðenda. Katrín vinnur að því hörðum höndum að innlima Ísland í Evrópusambandið gegn stefnuskrá flokksins.

Katrín mun ekkert gera að eigin visku  nema það standist ýtrustu kröfur ástkærs skuggastjórnanda SJS.

Katrín sem formaður VG er djók!

Eggert Sigurbergsson, 18.2.2013 kl. 06:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband