Evran veldur óstöðugleika

Evran er of hátt skráð fyrir Suður-Evrópu og er ástæðan fyrir atvinnuleysi tugmilljóna manna. Þegar Frakkar eru teknir til við að æmta undan of háu gengi evrunnar er líklegt að þýsk-franski öxullinn í Evrópusambandinu sé við það að bila.

Stóru hagkerfin, s.s. Bandaríkin, Japan og Kína, eru öll að fikta við gengisskráningu sinna gjaldmiðla til að bæta stöðu útflutningsatvinnugreina sinna - auðvitað á kostnað einhverra annarra.

Þjóðverjar munu ekki ljá máls á handstýringu evrunnar enda myndi það skapa hættulegt fordæmi. Frakkar á hinn bóginn eru með frjálslegri viðhorf til fjármála og finnst ekkert tiltökumál að taka áhættuna af aukinni verðbólgu ef það þjónar öðrum mikilvægari efnahagsmarkmiðum, t.d. í baráttunni við atvinnuleysi.

Fyrr heldur en seinna mun evran kikna undan ólíkum pólitískum kröfum sem gerðar eru til gjaldmiðilsins. 


mbl.is Hátt gengi evrunnar ógnar ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband