Hrun, kjarabarátta og haturspólitík

Í útrásinni urðu til fölsk lífskjör sem voru afhjúpuð í hruninu 2008. Almenningur veit sem er að minna er til skiptanna og vinnudeilur eru sárafáar á kjörtímabilinu. Ríkisstjórnin hefði átt að stuðla að varanlegum friði á vinnumarkaði með því að ná breiðri sátt í samfélaginu um hvernig skuli unnið að því að bæta kjör launafólks.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. sinnti ekki frumskyldum stjórnvalda að stuðla að friði og sátt í samfélaginu. Þvert á móti kveikti ríkisstjórnin hvert ófriðarbálið á fætur öðru; ESB-umsóknin, atlagan að stjórnarskránni og skemmdarverk á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Verkalýðshreyfingin sagði skilið við ríkisstjórnina í haust og harður hnútur sem kjaradeila hjúkrunarfræðinga er í hvorttveggja rökrétt afleiðing af forgangsröðun ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. þar sem haturspólitík er í fyrsta sæti. 


mbl.is Margt þarf að gerast og hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband