Léleg þátttaka í formannskjöri Samfó

Aðeins einn af hverjum þrem flokksmönnum Samfylkingar taka þátt í að velja næsta formann. Léleg þátttaka sýnir að þeir kostir sem eru í boði höfða ekki til almennra félaga. Þó skiptir meira máli að Samfylkingin horfir fram á langvarandi áhrifaleysi.

Samfylkingin er taplið stjórnmálanna. Stærstu mál flokksins s.s. ESB-umsóknin, stjórnlagaþing/ráð og stjórnarskrá, landsdómur og Icesave eru stórkostleg handvömm.

Samfylkingin nýtur þess ekki að efnahagur þjóðarinnar er í góðu lagi. Allur málflutningur Samfylkingar gengur út á að Ísland sé ónýtt og eina bjargráðið sé Brussel.

Hvorki almenningur né flokksmenn nenna að púkka upp á niðurrifsorðræðu Samfylkingar.


mbl.is Um þriðjungur félagsmanna kaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

VG er búinn að tapa mun meira fylgi.

Sleggjan og Hvellurinn, 29.1.2013 kl. 13:16

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Það bætir nú engu fyrir lánlausa Samfylkinguna sem virðist hafa tapað ca 40% af fylgi sínu samkvæmt skoðanakönnunum að benda nú á verri útkomu VG.

En fylgishrun VG er einmitt fyrst og fremst til komin vegna undirlægju þeirra við Samfylkinguna og stórfelldum svikum gagnvart kjósendum sínum í ESB málinu.

Gunnlaugur I., 29.1.2013 kl. 13:24

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Seint mun nú Samfylkingin vera talin flokkur bænda,en hún hefur samt mikinn fjölda sauða í sínum hóp bæði til forustu og fylgisveina. En eitt notar hún óspart að fara sem verst með sinn samstarfsflokk í ríkisstjórn.

Ragnar Gunnlaugsson, 29.1.2013 kl. 13:33

4 Smámynd: Sólbjörg

Samfylkingin er málefnalega tapflokkur eins og Páll bendir á, þeim hefur tekist að klúðra öllum helstu málum sínum til mikils tjóns og kostnaðarauka fyrir ríkið. VG eru ekki samanburðarhæfir því þeir ákváðu daginn eftir kosningar að ganga sjálfir milli bols og höfuðs á eigin stefnuskrá, stefnumálinu sem hafði fært þeim sigurinn. Ekki einu sinni kind getur verið svo heimsk sem VG, hún myndi allavega reyna eins og samfylkingin hefur verið að stappast í sl. 4 ár.

Sólbjörg, 29.1.2013 kl. 16:31

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Svo var formaskjör VG ekki beisið. Kannski nokkrir tugir.

Samfylkingin er allavega með þúsundir manna

Sleggjan og Hvellurinn, 29.1.2013 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband