Árni Páll fúll út í Dag: sumir mega ekki hafa skoðun

Samfylkingin trúir á takmarkað málfrelsi og vill þröngar skorður á hverjir mega hafa skoðanir og hverjir ekki. Árni Páll og stuðningsmenn hans bregðast ókvæða við stuðningsyfirlýsingu Dags B. Eggertssonar við formannsframboð Guðbjarts Hannessonar.

Í Eyjunni er útskýrt hvað má og hvað má ekki í Samfylkingunni.

 


mbl.is Dagur styður Guðbjart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eftir því sem óvinsældir Samfylkingar aukast, því sovéskari verða forystusauðirnir.

Sýnist þróunin verða sú, að Samfylkingin ætli að elta VG út í öfgafenið. Megi sameinginlegur dauðadagi þeirra þar, verða skjótur og sársaukalaus.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.1.2013 kl. 16:40

2 identicon

"Orðið á götunni" á eyjan.is er ekki blaðamennska, heldur ábyrgðarlaust slúðurrugl í boði Karls Th. Birgissonar, oftar en ekki uppspuni. Sem fjölmiðlafræðingi er kannski fyrir neðan þína virðingu að sælda þig saman við þesslags.

Slöttólfur (IP-tala skráð) 20.1.2013 kl. 21:58

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er nú vinur fólks sem er að vinna fyrir Árna Pál og það vissu allir um að Dagur væri fylgismaður Guðbjarts og myndi tilkynna það. Það varð enginn reiður út af því.  Það varð í raun engin reiður en fannst ekki við hæfi setningin sem að Dagur kom með í endan varðandi Landsvirkjun. Og í framhaldi sendi Árni á okkur facebook vini þessa meldingu sem þú vitnar í frá eyjunni.

Sýnist taugar orðið nokkuð þandar í formannskjöri. Nokkrar meginreglur sem gott er að hafa í huga:
1. Við tölum fyrir verðleikum frambjóðanda en ekki gegn keppinaut.
2. Við gerum keppinaut ekki upp skoðanir – hvorki um einkavæðingu ríkisfyrirtækja né annað.
3. Við tölum fyrir framtíðarsýn.
4. Við trúum ekki á skoðanakannanir og munum að ekkert er í höfn fyrr en kosningu lýkur.
Og svo munum við að þetta er lýðræðishátíð, sem á að vera gaman að taka þátt í.

Þetta var nú öll  reiðin. Hann var að benda okkur stuðningsmönnum á að passa okkur að missa okkur ekki út í svona moldarslag. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 20.1.2013 kl. 22:06

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já við vitum Magnús minn, það er bara einn Füli í öllu apparatinu. Kalli skrifar líka stundum um það, sem fólk á götunni skrafar.

Helga Kristjánsdóttir, 21.1.2013 kl. 02:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband