Hreinsanir hjá VG - Ögmundur og Jón Bjarna næst

Klíkan í kringum Steingrím J. Sigfússon ætlar að gera VG að ESB-hjáleigu Samfylkingar. Skipulegar hreinsanir eru stundaðar á trúnaðarmönnum sem ekki fylgja línunni frá Steingrími J. og Árna Þór.

Ögmundi Jónassyni er ekki sætt lengur og Jón Bjarnason er svo gott sem kominn úr flokknum.

ESB-hjáleigan fær svona 5 til 7 prósent fylgi í þingkosningunum.


mbl.is Andstæðingar ESB settir til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjáleigan segirðu.Ertu ekki að tala um "Hækjuna"

josef asmundsson (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 08:26

2 identicon

Steingrímur J. & Co. eru ekki aðeins hækjur Samfylkingarinnar í ESB-málum, heldur líka hækjur auðvaldsins í landinu, sbr. hversu bankaelítan er hjartfólgin Steingrími og hversu mikið hann fyrirlítur sótsvartan almúgann.

Pétur (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 09:01

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Það styttist í kosningar...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 7.11.2012 kl. 09:13

4 identicon

Það er líka augljóst að Snati Skallagríms ætlar að fremja  pólitíkst harakírí með því að gelta að Katastroffu litlu heimasætu i Reykjavík, í réttunum í vor komandi. Örvæntingin er slík....

Hrúturinn (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 11:38

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Vinnubrögð VG eftir síðustu kosningar, er skýrt dæmi um hvernig lýðræðislegar kosningar eru hundsaðar og fótum troðnar. Spurningin er hvað bankarnir spila stórt hlutverk í þessum svikaverkum?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.11.2012 kl. 14:17

6 identicon

Borges var blindur, hann var vitur. 

Ögmundur er með leppa bundna fyrir augun og telur sig þannig vitran. 

Það er einhver meinloka hjá honum.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 16:03

7 identicon

Allir sannir, frjálsir, sjálfstæðir, fullveldissinnaðir og sannir villikettir

sama hvaða flokk þeir hafa hingað til kosið

ættu að sjá hið augljósa, að Samstaða Lilju Mósedóttur, x C

er hið augljósa svar okkar okkar

gegn glórulausu aðlögunarferlinu að alríkisbákni ESB.

Vonandi fer fólk að glenna upp augun og sjá að svona einfalt er þetta.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 16:48

8 identicon

http://www.xc.is/c/5318

www.xc.is
Verkefni landsfundar SAMSTÖÐU flokks lýðræðis og velferðar, sem fram fór um nýliðna helgi, voru: breytingar á stofnsamþykktum fl

x C (IP-tala skráð) 7.11.2012 kl. 18:38

9 identicon

Þeir sem tala mest um nauðsyn lýðræðis eru í eðli sínu á móti lýðræði, á sama hátt og allar verslanir sem fagna samkeppni. Þessir aðdáendur lýðræðis hjá VG eru bara í leit að vinnu. Menn flytja sig milli hreppa eins og ekkert sé. Hreppaflutningar hafa sem sagt ekki verið aflagðir. Sjáið bara Björn Val. Hann á ekki séns fyrir norðan, þökk sé frammistöðunni, og fer fram gegn ráðherrum í Reykjavík. Þar á hann enn minni séns, en til að halda andlitinu í baráttunni í vetur (til að vera marktækur í umræðunni fram á vor, t.d. að eiga enn séns að komast í Sunnudagssilfrið) verður hann að gera eitthvað í málinu.

Helgi (IP-tala skráð) 9.11.2012 kl. 00:34

10 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ísland er bara einn lítill hreppur á þessari jarðarkringlu.

Þróunin er svo ör í heiminum, og fólk þarf að sleppa takinu á sérhagsmuna-pólitík, og snúa sér að samfélags-velferðarpólitík.

Sameinuð stöndum við og sundruð föllum við. Það er gamall og nýr sannleikur.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.11.2012 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband