Heilög vé ei meir

Sitjandi formaður Sjálfstæðisflokksins fékk mótframboð gegn sér á síðasta landsfundi. Bjarni Benediktsson formaður fær núna samkeppni um fyrsta sætið í Suðvesturkjördæmi. Öðrum þræði sýna mótframboðin lýðræðislega virkni í stærsta stjórnmálaflokki landsins, mínus kjörtímabilið 2009-2013.

En hinum þræðinum er samkeppnin um stöðu formannsins í flokknum og kjördæminu vitnisburður um hve veikt Bjarni formaður stendur. Ef allt væri með felldu myndu sjálfsstæðismenn á kosningavetri fylkja sér um formanninn.

Enn er ekki útséð með hvernig Bjarna reiðir af en vísbendingarnar eru ekki góðar. Bjarni er ekki stjórnmálamaður sannfæringarinnar og hættir til vingulsháttar, samanber stuðninginn við síðustu Icesave-útgáfu Jóhönnustjórnarinnar, og jafnvel alvarlegs dómgreindarskorts eins og greinin bar með sér sem hann skrifaði með Illuga Gunnarssyni í desember 2008 um að kannski væri sniðugt að taka upp ESB-stefnu Samfylkingar. 

Bjarni Benediktsson fékk endurnýjað umboð frá síðasta landsfundi Sjálfstæðisflokksins og hann mun leiða flokkinn til næstu kosninga - að því gefnu að Hanna Birna rúlli ekki upp Illuga fóstbróðurs Bjarna í Reykjavík og Ragnar Önundarson geri formanninum skráveifum í Suðvesturkjördæmi. 

Nái Hanna Birna pólitísku rothöggi á Illuga og hljóti Bjarni slaka útkomu í sínu kjördæmi er eins víst að krafan um formannsskipti í flokknum fyrir kosningar verði hávær.


mbl.is Sækist eftir fyrsta sæti í Kraganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg væri það frábært ef Ragnar Önundarson fengi gott fylgi.

Finst svo sem Illugi oft segja góða hluti, en Hanna væri alveg örugglega miklu betri kostur.

Það þarf að lofta út í þessum félagsskap.

jonasgeir (IP-tala skráð) 20.10.2012 kl. 09:12

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Hvernig sem allt fer verður forystan að tala skýrt og taka þá einörðu afstöðu sem krafist er af henni í helstu málum. Ákvarðanafælni er agalegur dragbítur á framfarir, það hafa síðust ár sýnt okkur skýrt.

Ívar Pálsson, 20.10.2012 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband