Líkur aukast á langvinnri evru-kreppu

Hröð úrlausn evru-kreppunnar byggist á því að Grikkjum sé vísað úr myntsamstarfinu og kerfisbreytingar kæmu hratt í kjöfarið. Æ minni líkur er á því að Þjóðverjar vísi Grikkjum á dyr, Merkel kanslari er orðin mjúkmál og þýskir fjölmiðlar birta ástæður fyrir því að halda Grikkjum inni, - þar sem áður var hvatt til brottrekstrar.

Á næsta ári eru kosningar í Þýskalandi og ráðandi öfl vilja ekki dramatík. Þýskaland mun gefa vilyrði fyrir áframhaldandi aðstoð við Grikki og freista þess að hægfara hnignun evru-svæðisins á næsta ári skapi ekki óöld í álfunni.

Wolfgang Münchau lítur svo á að Þýskaland geti ekki varið sig gegn fjárkúgun Suður-Evrópu. Áhrif þessarar fjárkúgunar verða aukin verðbólga á evrusvæðinu og auknar skuldir þýska ríkisins. En þau áhrif koma ekki í ljós fyrr en eftir kosningarnar á næsta ári.


mbl.is Metfjárhæð úr spænskum bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hreint ekki áhrifalaus Suður-Evrópa.

Helga Kristjánsdóttir, 29.8.2012 kl. 23:37

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Siðferðiskreppan er hættulegust. Hverjum verður vísað úr samfélagi "siðaðra"? Hverjir sjá um að vísa fólki frá samfélagi "siðaðra" og "ófatlaðra"?

Bankar veðja líklega bara á þá sem taldir eru "ófatlaðir"?

Eftir að hafa lesið það sem mbl.is þykir fréttnæmt í kvöld, þá velti ég fyrir mér hvort ekki séu líkur á langvinnri siðferðis-brenglunar-kreppu. Ekki er eitt orð um setningu ólympíuleika fatlaðra?

Hvað veldur þessu áhugaleysi á heilbrigðum keppnisanda ásamt andlegum og hetjulegum styrkleika fatlaðra?

Hvers vegna eru ólympíuleikar fatlaðra ekki hafðir með ólympíuleikum "ófatlaðra"? Er það andleg kreppa og siðferðis-vanþroski sem veldur því?

Það er tímabært að velta því fyrir sér, hvers vegna sumir eru ekki taldir með í heildinni "siðmenntuðu", sem stjórnað er af "háttsettum og siðmenntuðum"!

Hvernig enda þessir ólympíuleikar?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.8.2012 kl. 23:51

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Betra seint en aldrei. Sá að þeir hjá mbl.is hafa haft dug í sér til að birta stuttan pistil um setninguna í London, og mont-klausu um íslensku keppendurna. Lengra nær víst ekki áhugi mbl.is á þessu frábæra hæfileikafólki frá allri veröldinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.8.2012 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband