VG: ESB ekkert skjól smáþjóðum

Vinstri grænir í Reykjavík taka Samfylkinguna á kné sér og spyrja hvers vegna ekki megi endurskoða ESB-umsóknina þegar sú reynsla er komin á sambandið að það þjónusti fremur banka og fjármag en almenning.

Vinstri grænir vísa í nýfengna reynslu Grikkja af ,,björgunaraðgerðum" Evrópusambandsins sem fela í sér björgun franskra og þýskra banka frá óhóflegum lánveitingum til Grikklands. Þeir sem borga fyrir björgunina er grískur almenningur.

Hvers vegna ættu Íslendingar að setja forræði sinna mála til Evrópusambands sem starfar hvorki í umboði almennings né í þágu almannahags? 


mbl.is Segja Samfylkingu þverskallast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Jamm ESB er stofnað af bankamönnum fyrir bankamenn.

Vá þvílíkt sörpræs að uppgötva það árið 2012 !!!!

Guðmundur Ásgeirsson, 16.8.2012 kl. 10:48

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Á kné,,, ,? fortölur duga ekki á merkikertin,er það ekki auðséð. Koma ráð!

Helga Kristjánsdóttir, 16.8.2012 kl. 11:16

3 identicon

Kakó-liðið á Suðurgötunni að rumska fyrst við sér núna?

Ætli þau finni mótmælaspjöldin undir rjómakakófroðunni eftir heil 3 ár?

Nejjj, þau eru sjálfsagt falin svo djúpt á bak við stein grímuna.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 16.8.2012 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband