Deilt og drottnað

Aldagömul aðferð utanaðkomandi yfirvalda er að deila og drottna. Jóhönnustjórnin er utanaðkomandi yfirvald í þeim skilningi að flokkarnir sem stjórninni standa fengu kosningu þegar þjóðin var í taugaáfalli eftir hrun.

Landsbyggðin talar einum rómi gegn fiskveiðistjórnunartillögum Jóhönnustjórnarinnar. Með því að dingla veggöngum hér og sjúkrarúmum þar framan í landsbyggðina og segja: þetta fáið þið í staðinn fyrir stuðning við 101-Reykjavíkurleiðina í fiskveiðistjórnun - þá er ríkisstjórnin að ala á úlfúð innan landsbyggðarinnar.

Stjórnviska Jóhönnustjórnarinnar festir í sessi þá ímynd að vinstristjórnin er valdaklíka sem hrifsaði völdin þegar þjóðin var í sárum.

 


mbl.is Atkvæðakaup og liður í að framlengja líf stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ekki skrítið að AGS vilji fá Steingrím til Grikklands, eftir framgöngu hans og Jóhönnu við heimilin í landinu,að neyta að taka víxitöluna úr sambandi strax eftir Hrun, sem varð þess valdandi að lán heimilanna stökkbreyttust í Hruninu, og urðu óviðráðanleg.

Og síðan gefa þau Vogunarsjóðunum opið skotleyfi á atvinnulaus og fjárvana Íslensk heimili, vegan ólöglegra lána bæði gengisbundinna og verðtryggðra,og neyta því síðan að verðtryggingin fái flýtimeðferð í dómskerfinu.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 21.5.2012 kl. 09:18

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Fisveiðistjórnunar-áróðurinn (frumvörp) er ekki byggður á sannleika um raunveruleikann í þessum málum, en enginn þorir að segja það.

AGS-veldið vill fá fólk með lágkúru-hugsjón og einbeittan vilja til að mismuna og svíkja, í þágu ESB-yfirvaldsins. Annars er nú ekki fengur í Baugsmafíu-keyptum starfskröftum ríkisstjórnarinnar.

Meiri villimennskan og ómannúðin.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.5.2012 kl. 10:23

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Var það ekki Göbbels sem hélt svo mikið upp á sundrað og sigrað /deilt og drottnað conseptið?

Jón Steinar Ragnarsson, 21.5.2012 kl. 10:36

4 identicon

Af hverju var Helga Björk handtekin? Af hverju fer hún svona ofboðslega í taugarnar á hreinu og tæru vinstri stjórninni?

http://www.svipan.is/?p=29662

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.5.2012 kl. 11:38

5 Smámynd: Elle_

Núverandi ríkisstjórn hefur gert lítið nema ala á úlfúð milli landshluta og landsmanna og valdníðast með einum eða öðrum hætti á fólki.  Fyrst var það ICESAVE1, næst Brusselfáráðið sem ætlar aldrei að enda, ICESAVE2 + 3, næst stjórnarskráin gegn Hæstarétti, nú fiskveiðin.

Elle_, 21.5.2012 kl. 11:39

6 identicon

Það rignir svoleiðis atvinnutilboðunum yfir hann Steingrím. Getur hann ekki fengið meðmæli frá Helgu Björk?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 21.5.2012 kl. 12:00

7 Smámynd: Elle_

Endurreisn þeirra fyrir fjármálaveldið eins Halldór benti á að ofan má ekki gleymast.  Evrópu allt.  ICESAVE átti að vera hluti af evrópsku endurreisninni að gjaldþroti ísl. ríkisins.

Elle_, 21.5.2012 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband