Bjálfar vilja samning sem er betri en ESB

Rök ESB-sinna á Íslandi eru þau bjálfalegustu í álfunni. Hér tala þingmenn, sem vilja láta taka sig alvarlega, eins og að ráðgerður aðildarsamningur Íslands verði betri en Evrópusambandið. Þess vegna verði að ,,klára ferlið"  til að sjá hvað er í boði.

Aðildarsamningur að Evrópusambandinu getur aldrei orðið annað og meira en sjálft Evrópusambandið. Ef við slysumst inn í klúbbinn erum við orðnir aðilar og verðum að láta yfir okkur ganga lög og reglur sambandsins.

Sjónarmiðið um að ,,kíkja í pakkann" verður hjákátlegt, svo ekki sé meira sagt, þegar haft er í huga að ,,pakkinn" - Evrópusambandið - hefur tekið verulegum breytingum frá því að Ísland lagði illu heilli inn umsókn sumarið 2009. 

 


mbl.is Betra að klára viðræðurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Allir þeir sem kíkt hafa í pakkann sjá að hann er tómur, þar er ekkert að finna. ESB hefur ekkert uppá að bjóða. Samt á að þvæla með þetta mál fram í rauðan dauðan til að þóknast nokkrum krötum.

Því segi ég NEI TAKK.

Tómas Ibsen Halldórsson, 28.2.2012 kl. 15:56

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Ein lögin sem myndu ganga yfir Íslendinga væru þau að óheimlit yrði að banna eina fjármálaþjónusutu fram yfir aðra á Íslandi. Íslendingum yrði bannað að banna verðtrygginu, ef okkur dytti það í hug. Bannað að banna verðtrygginu. Í ESB er verðtrygging húsnæðislána nú til skoðunar þar sem miklar og djúpar verðsveiflur eru að gera út af við húsnæðiseigendur. Verðtrygging fjárskuldbindinga á fjármálamörkuðum evrulanda er þess utan í örum vexti. Og er talin nýsköpun þar.

Gunnar Rögnvaldsson, 28.2.2012 kl. 16:06

3 identicon

Verðtrygging fjárskuldbindinga t.d. leigusamninga er föst venja í flestum Evrópulöndum nema þar sem enn óhagstæðari venjur eru við lýði (t.d. í Bretlandi). Fastir vextir til 10 ára til bestu viðskiptavina eru nú ca. 5%. Eru það ekki 3% raunvextir?

Í Lettlandi fékk almenningur 50% launalækkun og 20% atvinnuleysi við hrun, en íbúðalánin í evrum. ...óskalandið, hvenær kemur þú?

EINAR S. HÁLFDÁNARSON (IP-tala skráð) 28.2.2012 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband