Tiltektin byrjar heima, Margrét Tryggva

Margrét Tryggvadóttir þingmaður Hreyfingarinnar spyr hvort Ísland sé ónýtt í pistli þar sem silikon í brjóstum, iðnaðarsalt í matvælum og mengaður áburður eru dæmi um ónýti Íslands.  Margrét hnykkir á ónýtinu með þessum orðum

Hér varð hrun einmitt vegna þess að eftirlitsstofnanirnar sem við treystum á voru ekki að vinna vinnuna sína og stjórnvöld SEM VISSU Í HVAÐ STEFNDI gerðu ekki neitt.

Margrét birtir pistil sinn á Eyjunni, þar sem hún með fast aðsetur. Eyjan er í eigu Björns Inga Hrafnssonar sem Jón Ásgeir sagði að hefði gert ,,díl aldarinnar" þegar hann sem borgarfulltrúi hleypti auðmönnum í auðlindir almennings í Orkuveitu Reykjavíkur.

Opinber umræða í skjóli hrunkvöðla er ekki leiðin að bjarga Íslandi frá ónýti, Margrét Tryggvadóttir, heldur beinlínis stuðlar hún að viðhaldi meinsins - sem er að handónýtir menn klifra metorðastigann og komast til mannaforráða sem þeir ættu ekki að hafa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyr, heyr!

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 10:53

2 identicon

Góður pistill.

En aðal meinið er pólitík og það sem henni fylgir.  Pólitískar mannaráðningar.  Pólitískar ráðningar auka á völd án raunverulegrar ábyrgðar.

Alveg eins og sést af fyrri dæmum eftirlitsstofnana.  Bæði hér og í Brussel.

Eða það að reka seðlabankastjóra fyrir þann sem kanski helst samdi vinnumódel bankans.  En auðvitað vegna pólitískrar fortíðar hans.  Því miður eru núverandi stjórnvöld þau verstu hvað pólitískar ráðningar varðar í manna minnum.

Þess vegna eiga pólitíkusar að hafa lítil mannaforráð.

jonasgeir (IP-tala skráð) 15.1.2012 kl. 11:00

3 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

 Auðvitað á tiltektin að byrja heima, hvað annað. Sammála þér Jónasgeir.

Eyjólfur G Svavarsson, 15.1.2012 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband