Auðmenn mega einir knésetja aðra

Pálmi í Fons stefndi fréttamanni RÚV og bakaði honum útgjöld; Jón Ásgeir Jóhannesson Baugsstjóri stefnir Birni Bjarnasyni til að auka honum útgjöld. Auðmenn ganga um götur og torg og hóta lögsóknum hverjum þeim sem leyfir sér að gagnrýna framferði þeirra.

Þegar auðmönnum sjálfum er stefnt heitir það einelti og ,,knésetning með málaferlum."

Auðmenn í hlutverki fórnarlamba er rulla sem fer þeim ekki.


mbl.is Knésetja menn með málaferlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Og Jón ´hinn mikli´ úr ´JÓNSBÓK´ stefndi manni og krafðist skaðabóta.  Merkileg sjálfumgleði annars að nefna bók eftir sér sjálfum. 

Elle_, 4.1.2012 kl. 22:31

2 Smámynd: Halldór Björgvin Jóhannsson

Það hefði nátturulega verið mjög einfalt fyrir þessa menn að losna við þennan lögfræðikostnað, þeir hefðu bara getið dómnum eins og hann var, eins og margir þurfa að gera vegna skorts á fjár er þessir auðmenn kæra aðra.

Halldór Björgvin Jóhannsson, 5.1.2012 kl. 01:12

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Við verðum að fara brýna ljáina ekki sé ég annað í stöðunni.

Sigurður Haraldsson, 5.1.2012 kl. 02:08

4 Smámynd: Björn Emilsson

Er ekki rangt mál að kalla þessa menn auðmenn. Eiga ekkert. Þeir væru betur kallaðir fjárglæframenn og það af verra taginu. Væru bak við lás og slá, meir að segja í Rússlandi.

Björn Emilsson, 5.1.2012 kl. 07:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband