Barroso: meiri miðstýring ESB til að bjarga evrunni

Í ræðu forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í morgun segir að aukin miðstýring á fjárlögum ríkja sambandsins sé nauðsynleg til að bjarga evru-samstarfinu. Ríki sem skuldsetja sig of mikið verða í framtíðinn sektuð og fjárlög ríkja fara til Brussel til samþykktar áður en þau taka gildi.

Í frétt Financial Times, sem er snöggtum faglegri en frétt mbl.is, kemur fram að þetta sé aðeins byrjunin. Til að treysta stoðir evrunnar verði að stíga afgerandi skref í átt að samþættingu efnahagskerfa þeirra þjóðríkja sem mynda Evrópusambandið.

Tillögur Barroso munu styggja Breta og Svía sem standa utan evru-samstarfsins. Fyrir Íslendinga er ræða Barroso enn ein staðfestingin á því að við eigum ekkert erindi inn í Evrópusambandið.

Skrifum undir hjá skynsemi.is


mbl.is ESB vill skatt á fjármagnsflutninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Og E-sambandssinnar munu enn blákaldir þræta fyrir fullveldistapið.

Elle_, 28.9.2011 kl. 11:49

2 identicon

Allar "bölspár" inngönguefasemdarmanna rætas jafnt og örugglega. 

Hvernig skyldi nú ítrekað uppljóstruðum marklausum og lygamörðum ESB - einangrunarsinna líða þessi misserin hafa gert reglulega í ESB brókina á vettvangi sem þessum...  ???

Getur manni verið annað en skemmt ...???

.

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.9.2011 kl. 13:08

3 Smámynd: Elle_

Kannski - - - þó ljótt sé að segja það.  En mbl fréttamenn hefðu nú getað skýrt fréttina miklu nánar og fóru heldur illa ofan í málið.  Fréttir þeirra eru alltof oft alltof ónákvæmar/stuttar.  Vilja þeir ekki vera þekktir sem vandaður fréttamiðill?  

Elle_, 28.9.2011 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband