Heimssýn þakkar Já, Íslandi

Heimssýnarbloggið birti eftirfarandi færslu um hádegisbil í tilefni af nýju heiti aðildarsinna hérlendis.  

Aðildarsinnar hér á landi hafa hægt en örugglega sannfærst um að Evrópa/ESB höfðar ekki til almennings. Eftir því sem þjóðin verður upplýstari um Evrópusambandið verður hún fráhverfari aðild. Nafngift samtaka aðildarsinna tekur mið af því að vörumerkið Evrópa er ónýtt hérlendis. Einu sinni hétu þau Evrópusamtökin og síðar Sjálfstæðir Evrópusinnar. Í fyrra reyndu aðildarsinnar nafngiftina Sterkara Ísland sem minnti dulítið á annan minnihlutahóp í Sjálfstæðisflokknum fyrir seinna stríð.

Í dag var nýjasta heiti samtaka aðildarsinna kynnt og nú skal það vera Já, Ísland.

Já, Ísland er gott nafn og gæti verið upphaf að heilli hugsun hjá aðildarsinnum. Til dæmis: Já, Ísland utan ESB.

Heimssýn þakkar Já, Íslandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Samtök þeirra sem vilja landi og þjóð vel gæti þá heitið: 

ÍSLANDI ALLT, EKKERT ESB

Axel Jóhann Axelsson, 15.2.2011 kl. 15:08

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Já Ísland. Kannski eigum við nei sinnar að nota okkur Já Ísland. Gott hjá þér að taka eftir þessu.

Valdimar Samúelsson, 15.2.2011 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband