Ólafur Ragnar ræður dagskrá stjórnmálanna

Umboðsleysi og eymdarstaða ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. er undirstrikuð af forseta lýðveldisins. Ólafur Ragnar hafnar ESB-umsókn Samfylkingarinnar og hann stendur einnig með þjóðarhagsmunum í Icesave-deilunni. Ríkisstjórnin ræður ekki við stærri verkefnin og hefur enga stefnu til að berjast fyrir.

Ólafur Ragnar setur dagskrá íslenskra stjórnmála. Þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave var stórsigur fyrir forsetann og að sama skapi ósigur vinstristjórnarinnar. Ólafur Ragnar þarf ekki að bera mál undir ríkisstjórnin og þau Jóhanna og Steingrímur J. starfa í skugga Bessastaðabóndans.

Ríkisstjórn og alþingi eru án umboðs en þora ekki í kosningar. Á meðan það fjarar undan þingi og ríkisstjórn vex forsetaembættið að völdum og virðingu.


mbl.is Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Já er ekki við hæfi að spiladós útrásarinnar taki við..

hilmar jónsson, 26.11.2010 kl. 12:37

2 identicon

Forsetinn er minn maður og myndi samþykkja hann sem einræðis herra þar sem hann virðist vera sá eini sem er ekki með hausinn fastan í rassgatinu á sjálfum sér.

OG hilmar ef forsetinn var spiladós útrásarinar..

hvað voru þá hinir?

hvað eru þeir að gera til að laga til eftir sig?

farbiond (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 13:27

3 identicon

Ríkisstjórnin hefur í raun verið sett af og valdið hirt af alþingi. 

Burt með þetta forsetaskrípi!!!

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 14:06

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þjóðin sagði hátt og snjallt NEI við síðasta samningi Steingríms vegna Ivesave. Þar með missti Steingrímur umboð þjóðarinnar til að semja um málið. En einræðisherrann, Steingrímur lætur sér ekki segjast og nú á aftur að hengja þetta einkamál útrásarmanna á þjóðina.

Það er ekkert eðlilegra en að þjóðin fái þá aftur tækifæri til að hafna einræðistilburðum Steingríms í málinu.

Aftur, aftur og aftur svo lengi sem þarf.

Ragnhildur Kolka, 26.11.2010 kl. 14:43

5 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Samkvæmt Stjórnarskránni er forsetinn umboðsmaður almennings. Sem betur fer höfum við núna mann í embætti sem skilur stjórnskipun landsins og stendur því með þjóðinni, gegn innlendum valda-aðli. Nýgjustu yfirlýsingar forsetans gefa fólki vonir um að atlögu Icesave-stjórnarinnar verði hrundið.

 

Ekki má þó sofna á verðinum, því að Sossarnir hafa áform um að veikja fullveldi lýðsins. Ætlun þeirra er að útvatna svo ákvæði Stjórnarskrárinnar, að hún gagnist almenningi ekki til varnar. Þessu verða menn að svara og staðfesta að fullveldið er í höndum almennings, en ekki Alþingis. Ekki má gefa færi á að auka vald Alþingis. Hafna verður þeirri oftúlkun, að þingræði merki meira en að Alþingi ræður lagasetningu og eftirliti með ráðherrunum.

 

Fullveldi merkir endanlegt og ótakmarkað vald til að ráða stjórn landsins. Stjórnskipulag landsins nefnist lýðveldi, vegna þess að fullveldið er hjá lýðnum. Í konungsveldi er fullveldið hjá konungnum. Þeir sem neita að skilja svona einfaldar skilgreiningar ættu að fara í heila-rannsókn. Nokkrar staðreyndir varðandi stjórnskipun Íslands:

 

 
  1. Fullveldið er hjá þjóðinni og þess vegna nefnist stjórnskipunin lýðveldi.
  2. Forsetinn er umboðsmaður þjóðarinnar.
  3. Forsetinn skipar ráðherra og veitir þeim lausn.
  4. Alþingi ræður lagasetningu, innan ramma Stjórnarskrárinnar og hefur eftirlit með störfum ráðherra. Í þessu er þingræðið fólgið og ekkert umfram það. Að ríkisstjórn er þingbundin merkir að hún er bundin af ákvörðum Alþingis, í formi lagasetninga.
  5. Sem fullveldishafi er lýðurinn með endanlegt og ótakmarkað vald til að breyta eða stöðva ákvarðanir Alþingis og ríkisstjórnar. Þjóðin og umboðsmaður hennar forsetinn geta í öllum tilvikum stöðvað lagafrumvörp og aðra gerninga ríkisstjórna, meðal annars ólöglega samninga eins og Icesave-kúgunina.
  6. Til að staðfesta vilja þjóðarinnar, er þjóðaratkvæði eina leiðin. Þetta gildir ekki bara um lög frá Alþingi, heldur ekki síður um breytingar á Stjórnarskránni.
  7. Þjóðin getur ákveðið að gjaldmiðill þjóðarinnar skuli vera alvöru gjaldmiðill, sem merkir að hann er ávísun á alvöru verðmæti. Í þessu samhengi eru einu alvöru verðmætin gull eða alþjóðlegir gjaldmiðlar. Þetta skipulag gjaldmiðilsins verður að festa í Stjórnarskránni.

 

 

Loftur Altice Þorsteinsson, 26.11.2010 kl. 16:35

6 identicon

Þú greiðir ekki gjaldþrot mannsins í næsta húsi.

 Þjóðin mun ALDREI greiða Icesave !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 17:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband