Jón Ásgeir, blaðamenn og valdið

Jón Ásgeir Baugsstjóri segir farir sínar ekki sléttar í fréttatilkynningu sem birtist fyrst í einum af fjölmiðlum í eigu hans. Hann telur slitastjórn bankans sem hann rændi innan frá leggja sig í einelti. Jón Ásgeir segist ekkert eiga og öngvu skotið undan. Lykilsetning í fréttatilkynningu Jóns Ásgeirs kemur þó peningum ekkert við, heldur valdi.

Slitastjórnin boðar til blaðamannafunda, eins og hún sé lögregluvald og þótt henni takist að blekkja örfáa blaðamenn, sem spyrja einskis, mun sá leikur taka enda og sannleikurinn koma í ljós.

Jón Ásgeir er sá einstaklingur á Íslandi sem á flesta fjölmiðla og ræður yfir tveim ef ekki þrem ritstjórnum. Í hans huga er aðili sem boðar til blaðamannafundar með ígildi lögregluvalds. Jafnframt þykist hann vita að til séu  blaðamenn á Íslandi sem spyrja einskins. Já, bragð er að þá barnið finnur.
mbl.is Jón Ásgeir skorar á Steinunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er Steinunn tekin við hlutverki Davíðs.  Hún er vonda kellingin sem er að leggja sig og sína í einelti.  Persónulegar árásir og illvilji hennar sem hefur ekkert með bankann og eigendur hans að gera.  Er ekki alveg öruggt að hún gangi erinda Davíðs að hans sögn?

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband