Flokksleg vangeta á alþingi

Stjórnmálaflokkarnir gelda störf alþingis með því að setja flokkshagsmuni ofar almannahag. Þríklofin þingnefnd um hrunið er staðfesting á einbeittum vilja stjórnmálaflokkanna að láta eins og ekkert hafi í skorist. Tiltrú almennings á alþingi verður ekki endurvakin á meðan flokkshagsmunir fá að dafna.

Á hverju ári skenkja stjórnmálaflokkarnir sér 500 m. kr. í beinan styrk og er það fyrir utan kostnað alþingis á fulltrúum flokkanna. Styrkinn nota flokkarnir til að einoka stjórnmál á Íslandi. Í krafti fjárráða eru aðrir útilokaðir frá stjórnmálaþátttöku en þeir sem ganga inn í einhvern stjórnmálaflokkinn.  Nýjum stjórnmálasamtökum er gert ómögulegt að bjóða fram þar sem forskot starfandi flokka er mælt í milljörðum króna.

Hrunnefndin kemur ekki auga á flokksþjónkun þingheims

Þingmannanefndin telur brýnt að Alþingi taki starfshætti sína til endurskoðunar, verji og styrki sjálfstæði sitt og marki skýr skil á milli löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins. Alþingi á ekki vera verkfæri í höndum framkvæmdarvalds og oddvitaræðis.

Og í framhaldi segir

 Alþingismönnum ber að sýna hugrekki, heiðarleika og festu í störfum sínum. Brýnt er að Alþingi og alþingismenn endurheimti traust þjóðarinnar með orðum sínum og athöfnum.

Nefndin talar fjálglega um alþingi og þingmenn en kemur ekki auga á flokkshelsið sem opinberaðist í þríklofnu nefndaráliti.

Alþingi er ófært um að endurreisa sig vegna þess að þingmenn neita að horfast í augu við spillinguna sem þrífst í skjóli stjórnmálaflokkanna.


mbl.is Þingfundur hefst á mánudagsmorgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel mælt Páll.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 12.9.2010 kl. 10:07

2 Smámynd: Ragnar Eiríksson

Sástu ekki viðtalið við Þór Saari og Vigdísi Hauksdóttir í sjónvarpi Ruv.  Það sagði hún um álitin þrjú - að þau væru eðlileg því þingmenn hefðu og ættu að hafa sjálfstæða skoðun.    Skrítið að þeir skyldu þá grúppa sig eftir flokkslínum!

Ragnar Eiríksson, 12.9.2010 kl. 10:24

3 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Góð færsla og þörf ámynning. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 12.9.2010 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband