Lýðræðishallinn í Brussel

Tveir reyndir blaðamenn kveðja Brussel í sumar og skrifa að skilnaði samantekt um stöðu Evrópusambandins. Báðir eru blaðamennirnir hlynntir tilrauninni með Evrópusambandið og vonast til að hún heppnist. Efasemdir beggja snúa fyrst og fremst að lýðræðishalla Evrópusambandsins.

Tony Barber sá um Brussel-skrifstofu Financial Times þangað til í sumar. Hann segir Evrópusambandið standa frammi fyrir þrem áskorunum. Í fyrsta lagi að stuðla að friði og hagsæld í nærsveitum; Balkanskaga, Tyrklandi og Úkraínu. Í öðru lagi að gyrða sig í brók í efnahagsmálum og loks er það lýðræðishallinn sem er átakanlega nakinn.

Dálkahöfundur Karlamagnúsar í Economist (nafnleynd er á blaðamönnum tímaritsins) rifjar upp  merkisatburði í lífi Evrópusambandsins á vaktinni hans sem stóð í fimm ár. Lýðræðishallinn er honum nærtækur og hann segir örsögu um viðbrögðin í Brussel við írska nei-inu í þjóðaratkvæðinu um Lissabon-sáttmálann 2008.

Sitting on a gilt armchair in a panelled stateroom, I was told by the head of a Brussels think-tank that the Irish result proved the idiocy of putting EU treaties to the people. “Fucking voters,” he declared, languidly extending one arm so the hovering steward could refill his champagne glass. “I mean, fucking voters, what do they know?” I still wish I had walked out.

 Þegar skynsamir aðildarsinnar eru gangrýnir á framtíð Evrópusambandsins er kannski ástæða til að þjóðir á jaðri álfunnar íhugi sinn gang og dragi tilbaka vanhugsaða aðildarumsókn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Evrópa er að búa til enn eina söguna um Animal Farm þar sem svínin búa í Brussel.

Í guðana bænum landsmenn allir, við höfum annað betra að gera en að fóðra þau svín.

jonasgeir (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 11:18

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Umsókn Samfylkingar er bara skipulagt undanhald. Núna fyrst höfum við raunhæfa möguleika til að rétta af lýðræðishallann á Íslandi og það hræðist stjórnmálaelítan

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.7.2010 kl. 12:41

3 identicon

Sammála jónásgeir

spritti (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 13:48

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það vissu flestir að Jóhanna er kjáni, en að Steingrímur væri slíkur lyga mörður sem hann er, var ekki tekið með í reikninginn. 

Evrópusamband gæti verið allt í lagi en þá þarf að breyta því.  Það eru ekki við sem þurfum að breyta okkur það er Evrópusambandið sem þarf að breyta sér til að vera viðunnandi fyrir okkur og fleirri.

Hrólfur Þ Hraundal, 25.7.2010 kl. 14:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband