Steinunn og Gulli í flokksskjóli

Styrkjadrottning Samfylkingarinnar Steinunn Valdís skýlir sér á bakvið styrkjakóng Sjálfstæðisflokksins Guðlaug Þór og hann beitir sömu aðferð. Bæði njóta þau skjóls af flokkunum sem þau tilheyra. Þetta heitir samsúrruð spilling sem eyðileggur traust almennings á stjórnmálaflokkum.

Stóru flokkarnir hafa sýnt sig vanhæfa til að gera hreint fyrir sínum dyrum. Þeir stunda samtryggingu gegn almannahagsmunum og koma í veg fyrir endurreisn eftir útrásarhrunið.

Jóhanna Sig. og Bjarni Ben. fremja skemmdarverk á hverjum degi gegn þjóðarhagsmunum með því að líða það að stóru flokkarnir skjóti skjólshúsi yfir þátttakendur í spillingunni fyrir hrun.


mbl.is Skoða ekki styrki Steinunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk.

Þetta er akkúrat kjarni málsins.

Alla "styrkþegana" burt.

Ragnheiður (IP-tala skráð) 27.5.2010 kl. 12:16

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Páll kjósið Besta flokkinn þó það væri ekki nema að sýna spillta fjórflokknum hver hefur valdið! Lyfi lýðræðið.

Sigurður Haraldsson, 27.5.2010 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband