Umboðsmaður lýðræðisins

Aldraðir þurfa umboðsmann, segir þingmaður Samfylkingar. Börn hafa þegar umboðsmann og orðtakið segir að tvisvar verði gamall maður barn.

En það eru ekki aðeins börn og gamalmenni sem þurfa umboðsmann. Umboðsmaður alþingis er til reiðu fyrir fullfríska kjósendur á besta aldri til umboðsvörslu gagnvart ríkisvaldinu sem á að heita að sé fengið frá almenningi - með umboði kjósenda.

Umboðsmennirnir eru fleiri: neytenda, sjúklinga, fatlaðra, borgarbúa og skuldara.

Einkenni allra þessara umboðsmanna er að þeir hafa ekki umboðið frá umbjóðendum sínum heldur kemur það að ofan, með lögum og reglum, en ekki að ósk eða kröfu þeirra sem umboðið á að þjóna.

Að einhverju marki er umboðstískan angi af sjálfkenndarstjórnmálum sem bútar fólk niður í marga hluta: skattgreiðanda, sjúkling, skuldara, rauðhærðan, knattspyrnuáhugamann o.s.frv. Þeir sem starfa í fórnarlambamenningunni erja þennan akur.

Umboðsfaraldurinn stafar einnig af yfirþyrmandi valdsókn hins opinbera inn í líf hins frjálsa borgara. Með tíð og tíma verður borgarinn ekki lengur einstaklingur heldur samsafn af auðkennum - og umboðsmaður er fyrir hvert auðkenni. Hver er aftur umboðsmaður lýðræðisins?


Náttúran er flókin

Eldar á Reykjanesi minna á að náttúran lýtur ekki vísindalegri þekkingu. Tilburðir mannsins að skilja náttúruna eru háðir þeim annmörkum að náttúran er ekki reikningsdæmi höfundar sem klappar á kollinn snjöllum vísindamanni að fenginni úrlausn.

Í menningu okkar ber á þeirri hugsun að maðurinn stýri náttúruöflunum, sést hvað skýrast á umræðunni um manngert veðurfar. Fyrr á tíð, þegar trúin var veigameiri þáttur í menningunni, var hægt að vísa til guðdómsins þegar röklegar skýringar þraut. En við lifum trúlausa tíma og þykjumst hafa svör á reiðum höndum um allt það sem í heimi er.  

Vísindin freista þess að skilgreina og spá fyrir um náttúrlega ferla en náttúran fer sínu fram óháð viðleitni mannsins. Sumir, t.d. Noam Chomsky, telja að mennsk meðvitund sé ekki þeim gáfum gædd að skilja náttúruna til hlítar.

 

 

 


mbl.is „Þetta verður bara flóknara og flóknara“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. apríl 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband