Olíuverð og flökkusögur í farsótt

Flökkusagan um að Ísland verði tilraunaverkefni Pfizer er býsna útbreidd. Ein útgáfa hennar er að landsmenn verði allir bólusettir í mars og landið opnist í apríl. 

Ísland verði í vor og sumar fyrirheitna landið ferðaþyrstra útlendinga með tilheyrandi vertíð og góðæri.

Íslendingar eru ekki einir um að trúa endalokum farsóttar. Olíuverð hækkar á heimsmarkaði vegna væntrar aukinnar eftirspurnar.

Með hækkandi sól kemur bjartsýni. Gott mál. Förum samt ekki fram úr okkur. Sígandi lukka er best.


mbl.is Ekkert hæft í „Pfizer-flökkusögum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-sinni vill á þing fyrir Vinstri græna

Róbert Marshall var þingmaður Samfylkingar og vildi ákafur inn í Evrópusambandið. Til að fjölga kratískum ESB-flokkum á alþingi tók hann að sér í verktöku fyrir Össur Skarphéðinsson að stofna Bjarta framtíð.

Sá flokkur varð frægur að endemum fyrir að sprengja ríkisstjórn Bjarna Ben. á næturfundi. Það reyndist pólitísk sjálfsmorðsárás. Björt framtíð ei meir kosningar á eftir.

Nú er Róbert mættur á sviðið hjá Vinstri grænum og vill á þing fyrir Suðurkjördæmi. Sprengidagur er handan við hornið.


mbl.is Róbert vill á þing fyrir VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. febrúar 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband