Sunnudagur, 6. september 2020
Ferðamenn, íslenskir og erlendir
Ein regla gildir um ferðamenn sem koma til landsins, tvöföld skimun og 5 daga sóttkví. Hagmundir ferðaþjónustunnar eru að breyta sóttkví erlendra ferðamanna í heimkomusmitgát.
Erlendir ferðamenn eru síður líklegir en íslenskir að valda smiti. Þeir erlendu fara til dæmis ekki í íslenska skóla. Íslensk hjón með þrjá unglinga er koma úr helgarferð frá útlöndum geta valdið smiti sem myndi loka tveim til þrem grunn- og framhaldsskólum. Og jafnvel, ef þannig stendur á, lokun heimsókna á hjúkrunarheimil.
Á yfirborðinu sýnist nærtæk lausn að leyfa erlendum ferðamönnum að viðhafa heimkomusmitgát (þótt þeir séu alls ekki heima hjá sér) en skylda þá íslensku í sóttkví. En þá myndi blasa við sú hrollvekja að Íslendingar sættu strangari sóttvörn í heimalandi sínu en útlendingar. Í vissum skilningi yrðu Íslendingar annars flokks borgarar í eigin landi. Engin stjórnvöld með nokkra vitglóru í kollinum myndu bjóða borgurum í lýðfrjálsu ríki upp á slíkt.
Sóttkví ferðamanna er raunhæf leið til að stemma stigu við nýgengi smita. Reynslan sýnir þetta. Nágrannaríki okkar glíma enn við alloft mikla útbreiðslu farsóttarinnar. Á meðan það ástand varir er óvarlegt að slaka á þeirri vörn sem skimun og sóttkví ferðamanna veitir.
Segir Jón Ívar snúa hlutum á hvolf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 6. september 2020
Kynþokki öfganna í augum miðaldra fólks
Dagblöðum með ranga skoðun á meintum loftslagsbreytingum af mannavöldum var lokað af öfgahópi er kennir sig við útrýmingu og uppreisn. Gerðist í höfuðborg Bretlands.
Douglas Murray í Telegraph vekur athygli á tvennu. Dagblöðin sem voru skotmörkin eru öll til hægri í pólitíska litrófinu. Í öðru lagi er stórt hlutfall aðgerðasinna í útrýmingu og uppreisn miðaldra fólk í þokkalegum efnum.
Þessu fólki leiðist, segir Murray, og finnur tilgang í lífinu í öfgahópi með trúarívafi.
Líffræðin virkar þannig að upp úr miðjum aldri dofnar kynhvötin. Tilgangur lífsins verður óskýrari þegar fólk hættir barneignum. Óstabílir einstaklingar, yfirleitt vinstrimenn, finna sér tilgang í trúarkreddum, einkum ef hún felur í sér heimsendi.
Í einni setningu: glötuð gredda verður kredda.
Mótmæltu meintum mistökum fjölmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)